Þrjú vindorkuver í Reykhólahreppi og Dalabyggð verða ekki færð inn á aðalskipulag þar sem innviðaráðherra hefur ákveðiðað synja staðfestingu skipulagsbreytinga þar um.
Sveitarstjórnir Reykhólahrepps og Dalabyggðar samþykktu á síðasta ári breytingar á aðalskipulagi vegna vindorkuvera; í landi Garpsdals, Hróðnýjarstaða og Sólheima. Um er að ræða stefnu um iðnaðarsvæði þarf sem áformað er að reisa vindmyllur til raforkuframleiðslu með allt að 89 MW uppsettu afli í landi Garpsdals, 130 MW í landi Hróðnýjarstaða og 150 MW í landi Sólheima. Skipulagsstofnun hafði við vinnslu og afgreiðslu skipulagstillagnanna ítrekað bent sveitarfélögunum á tiltekin atriði sem bæta þyrfti úr, til að unnt væri að staðfesta aðalskipulagsbreytingarnar, sem sveitarfélögin féllust ekki á.
Í vísaði Skipulagsstofnun afgreiðslu aðalskipulagsbreytinganna til innviðaráðherra til ákvörðunar um staðfestingu, en stofnunin taldi að synja bæri staðfestingu aðalskipulagsbreytinganna þar sem efni og framsetning þeirra samræmdist ekki lögum um rammaáætlun (verndar- og orkunýtingaráætlun).
Í greinargerð Skipulagsstofnunar til ráðherra kom fram að áformuð vindorkuver falla undir lög um rammaáætlun og að hún væri bindandi við gerð skipulagsáætlana. Stofnunin benti á að í lögunum kemur fram að virkjunarkostir sem rammaáætlun tekur til og hefur ekki verið tekin afstaða til í gildandi rammaáætlun skulu lúta sömu reglum og virkjunarkostir í biðflokki áætlunarinnar. Umræddir virkjanakostir eru ekki í gildandi rammaáætlun.
Í tilkynningu á vef Skipulagsstofnunar segir að ráðherra hafi tekið ákvörðun um málið í byrjun apríl og að í ákvörðun hans sé tekið undir það með Skipulagsstofnun að skilgreining iðnaðarsvæðis án takmarkana samræmist ekki lögum. Einnig að forsenda þess að unnt sé að staðfesta aðalskipulagsbreytingarnar sé að fyrirhuguð iðnaðarsvæði séu skilgreind sem varúðarsvæði í aðalskipulagi. Ákvörðun ráðherra, var því að synja staðfestingu á umræddum breytingum á aðalskipulagi Reykhólahrepps og Dalabyggðar.