Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti í dag harðorða ályktun þar ábyrgð á þjónustu við flóttafólk er vísað til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins.
Í ályktuninni segir að Hafnarfjarðarbær hafi frá árinu 2015 verið eitt þriggja sveitarfélaga landsins sem gert hefur samning við ríkisvaldið um móttöku einstaklinga í leit að alþjóðlegri vernd, en hin tvö eru Reykjavík og Reykjanesbær. Auk þess hefur bæjarfélagið tekið á móti stórum hópi flóttafólks í gegnum samræmda móttöku, en önnur sveitarfélög sem gera það eru Akureyri, Árborg, Reykjanesbær og Reykjavík.
Þessum verkefnum segist Hafnarfjarðarbær hafa sinnt af alúð og metnaði og að mikil sérþekking hafi skapast innan sveitarfélagsins vegna þessa. „Nú er svo komið að hátt í 200 börn sem hafa komið til landsins á flótta eru í grunn- og leikskólum Hafnarfjarðar og leggur bæjarfélagið mikla áherslu á að sinna þeim einstaklingum vel. Undanfarna mánuði hefur Hafnarfjarðarbær ítrekað komið því á framfæri við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið að bærinn geti ekki tekið á móti fleira flóttafólki í bili þar sem innviðir sveitarfélagsins séu fyrir all nokkru komnir að þolmörkum, sérstaklega hvað skólaþjónustu og stuðning til barna varðar.“
Ríkisstofnun sett upp úrræði án samráðs
Þrátt fyrir þetta hafi flóttafólki án samnings við bæjarfélagið fjölgað um nokkur hundruð á síðustu vikum. „Fólkið er hingað komið og búsett í úrræðum sem Útlendingastofnun hefur komið upp í bæjarfélaginu algjörlega án samráðs við bæjaryfirvöld. Í erindum bæjarins til ráðuneytisins hefur því skýrt verið komið á framfæri að útilokað er að Hafnarfjarðarbær geti tekið við fleira flóttafólki og veitt því þá þjónustu sem lögum samkvæmt búsetusveitarfélaginu ber að gera, sbr. skólaþjónustu til barna. Þar sem viðræður og erindi til ráðuneytisins og Útlendingastofnunar hafa ekki skilað árangri, er ábyrgðinni á veitingu þjónustunnar hér með vísað til félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins. Hafnarfjarðarbær skorast alls ekki undan þátttöku í verkefninu og vill sinna því vel áfram með hagsmuni flóttafólks og hælisleitenda að leiðarljósi. Ríkið verður hins vegar að standa undir sinni ábyrgð í málinu og koma til móts við bæjarfélögin sem hafa tekið að sér þessi verkefni.“
Reykjanesbær líka kominn að þolmörkum
Meirihluti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar sendi frá sér ályktun um sambærilegt efni í síðustu viku. Þar kom fram að ríkisstofnanir hefðu komið sér upp leiguhúsnæði sem rúmi á fimmta hundrað einstaklinga á flótta, í Ásbrúarhverfi, umfram þá um 270 sem sveitarfélagið þjónustar nú þegar án þess að fjármagn hafi fylgt til grunnstoða samfélagsins. Fyrir vikið séu allir innviðir komnir að þolmörkum. „Það er algjörlega ótækt að samráð ríkis og sveitarfélags sé ekki betra og að ekki séu tekin til greina málefnaleg rök sem borist hafa frá Reykjanesbæ.“
Í ályktuninni, sem birt var á vef Víkurfrétta, sagði enn fremur að í huga meirihlutans sé einungis ein lausn á málinu, sem hafi margoft verið rædd áður. „Hún er að reglugerð verði lögð fram um að sveitarfélög á stórhöfuðborgarsvæðinu taki við ákveðnum fjölda einstaklinga miðað við íbúafjölda hvers þeirra. Ljóst er að þetta gengur ekki lengur með núverandi skipulagi.“