Innviðir Hafnarfjarðar komnir að þolmörkum vegna þjónustu við flóttafólk

Hafnarfjörður hefur ítrekað komið því á framfæri við félags- og vinnumarkaðsráðuneytið undanfarið að sveitarfélagið geti ekki tekið á móti fleira flóttafólki í bili. Samt hafi ríkisstofnanir komið upp úrræðum þar án samráðs við bæjaryfirvöld.

Guðmundur Ingi Guðbrandsson er félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson er félags- og vinnumarkaðsráðherra.
Auglýsing

Bæj­ar­stjórn Hafn­ar­fjarðar sam­þykkti í dag harð­orða ályktun þar ábyrgð á þjón­ustu við flótta­fólk er vísað til félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins. 

Í álykt­un­inni segir að Hafn­ar­fjarð­ar­bær hafi frá árinu 2015 verið eitt þriggja  sveit­ar­fé­laga lands­ins sem gert hefur samn­ing við rík­is­valdið um mót­töku ein­stak­linga í leit að alþjóð­legri vernd, en hin tvö eru Reykja­vík og Reykja­nes­bær. Auk þess hefur bæj­ar­fé­lagið tekið á móti stórum hópi flótta­fólks í gegnum sam­ræmda mót­töku, en önnur sveit­ar­fé­lög sem gera það eru Akur­eyri, Árborg, Reykja­nes­bær og Reykja­vík.

Þessum verk­efnum seg­ist Hafn­ar­fjarð­ar­bær hafa sinnt af alúð og metn­aði og að mikil sér­þekk­ing hafi skap­ast innan sveit­ar­fé­lags­ins vegna þessa. „Nú er svo komið að hátt í 200 börn sem hafa komið til lands­ins á flótta eru í grunn- og leik­skólum Hafn­ar­fjarðar og leggur bæj­ar­fé­lagið mikla áherslu á að sinna þeim ein­stak­lingum vel. Und­an­farna mán­uði hefur Hafn­ar­fjarð­ar­bær ítrekað komið því á fram­færi við félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið að bær­inn geti ekki tekið á móti fleira flótta­fólki í bili þar sem inn­viðir sveit­ar­fé­lags­ins séu fyrir all nokkru komnir að þol­mörk­um, sér­stak­lega hvað skóla­þjón­ustu og stuðn­ing til barna varð­ar.“

Rík­is­stofnun sett upp úrræði án sam­ráðs

Þrátt fyrir þetta hafi flótta­fólki án samn­ings við bæj­ar­fé­lagið fjölgað um nokkur hund­ruð á síð­ustu vik­um. „Fólkið er hingað komið og búsett í úrræðum sem Útlend­inga­stofnun hefur komið upp í bæj­ar­fé­lag­inu algjör­lega án sam­ráðs við bæj­ar­yf­ir­völd. Í erindum bæj­ar­ins til ráðu­neyt­is­ins hefur því skýrt verið komið á fram­færi að úti­lokað er að Hafn­ar­fjarð­ar­bær geti tekið við fleira flótta­fólki og veitt því þá þjón­ustu sem lögum sam­kvæmt búsetu­sveit­ar­fé­lag­inu ber að gera, sbr. skóla­þjón­ustu til barna. Þar sem við­ræður og erindi til ráðu­neyt­is­ins og Útlend­inga­stofn­unar hafa ekki skilað árangri, er ábyrgð­inni á veit­ingu þjón­ust­unnar hér með vísað til félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neyt­is­ins. Hafn­ar­fjarð­ar­bær skor­ast alls ekki undan þátt­töku í verk­efn­inu og vill sinna því vel áfram með hags­muni flótta­fólks og hæl­is­leit­enda að leið­ar­ljósi. Ríkið verður hins vegar að standa undir sinni ábyrgð í mál­inu og koma til móts við bæj­ar­fé­lögin sem hafa tekið að sér þessi verk­efn­i.“

Auglýsing
Í álykt­un­inni segir að bæj­ar­fé­lag­inu beri lögum sam­kvæmt að gæta hags­muna allra barna sem nú þegar eru í leik- og grunn­skóla­kerf­inu. „Vegna skorts á sam­ráði þola inn­viðir sveit­ar­fé­lags­ins hins vegar ekki frek­ari fjölgun flótta­fólks án samn­ings og óskar Hafn­ar­fjarð­ar­bær því eftir því að félags- og vinnu­mark­aðs­ráðu­neytið taki ábyrgð á því að við­eig­andi þjón­ustu við flótta­fólk verði sinnt.“

Reykja­nes­bær líka kom­inn að þol­mörkum

Meiri­hluti bæj­ar­stjórnar Reykja­nes­bæjar sendi frá sér ályktun um sam­bæri­legt efni í síð­ustu viku. Þar kom fram að rík­is­stofn­anir hefðu komið sér upp leigu­hús­næði sem rúmi á fimmta hund­rað ein­stak­linga á flótta, í Ásbrú­ar­hverfi, umfram þá um 270 sem sveit­ar­fé­lagið þjón­ustar nú þegar án þess að fjár­magn hafi fylgt til grunn­stoða sam­fé­lags­ins. Fyrir vikið séu allir inn­viðir komnir að þol­mörk­um. „Það er algjör­lega ótækt að sam­ráð ríkis og sveit­ar­fé­lags sé ekki betra og að ekki séu tekin til greina mál­efna­leg rök sem borist hafa frá Reykja­nes­bæ.“

Í álykt­un­inni, sem birt var á vef Vík­ur­frétta, sagði enn fremur að í huga meiri­hlut­ans sé ein­ungis ein lausn á mál­inu, sem hafi margoft verið rædd áður. „Hún er að reglu­gerð verði lögð fram um að sveit­ar­fé­lög á stór­höf­uð­borg­ar­svæð­inu taki við ákveðnum fjölda ein­stak­linga miðað við íbúa­fjölda hvers þeirra. Ljóst er að þetta gengur ekki lengur með núver­andi skipu­lag­i.“ 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent