„Við munum eftir fremsta megni tryggja að aðildarferlið gangi hratt fyrir sig þar sem Finnland og Svíþjóð standast nú þegar viðmið sem gerð er krafa um vegna aðildar að Atlantshafsbandalaginu.“
Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu sem forsætisráðherrar Íslands, Danmerkur og Noregs hafa gefið út þar sem þeir ítreka stuðning við ákvörðun Finnlands og Svíþjóðar að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu (NATO), sem tilkynnt var um í gær og í dag.
Í yfirlýsingunni kemur fram að norrænu ríkin innan bandalagsins muni leggja sig fram um að tryggja að umsóknarferlið gangi hratt fyrir sig enda standist Finnland og Svíþjóð nú þegar þau viðmið sem krafa er gerð um vegna aðildar að bandalaginu.
Forsætisráðherrar Íslands, Danmerkur og Noregs taka jafnframt fram að ríkin muni aðstoða Finnland og Svíþjóð með öllum ráðum verði öryggi þeirra ógnað áður en aðild að Atlantshafsbandalaginu gengur í gildi.
Fyrsta sinn sem formaður VG myndi styðja stækkun NATO
Kjarninn spurði Katrínu Jakobsdóttir formann Vinstri grænna (VG) og forsætisráðherra í byrjun maí hvort hún myndi styðja við stækkun NATO og svaraði hún að hún myndi styðja þá ákvörðun sem Finnland og Svíþjóð myndu taka.
Það væri í fyrsta sinn sem formaður VG myndi styðja við stækkun NATO en fyrrum formaður flokksins, Steingrímur J. Sigfússon, og þingmenn flokksins hafa ítrekar greint frá þeirri afstöðu sinni að Ísland eigi ekki að vera í NATO og þau styddu ekki stækkun bandalagsins.