Ítreka stuðning við ákvörðun Finnlands og Svíþjóðar að sækja um aðild að NATO

Forsætisráðherrar Íslands, Danmerkur og Noregs hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir segja að ríkin muni aðstoða Finnland og Svíþjóð með öllum ráðum verði öryggi þeirra ógnað áður en aðild að Atlantshafsbandalaginu gengur í gildi.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra.
Auglýsing

„Við munum eftir fremsta megni tryggja að aðild­ar­ferlið gangi hratt fyrir sig þar sem Finn­land og Sví­þjóð stand­ast nú þegar við­mið sem gerð er krafa um vegna aðildar að Atl­ants­hafs­banda­lag­in­u.“

Þetta kemur fram í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu sem for­sæt­is­ráð­herrar Íslands, Dan­merkur og Nor­egs hafa gefið út þar sem þeir ítreka stuðn­ing við ákvörðun Finn­lands og Sví­þjóðar að sækja um aðild að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO), sem til­kynnt var um í gær og í dag.

Í yfir­lýs­ing­unni kemur fram að nor­rænu ríkin innan banda­lags­ins muni leggja sig fram um að tryggja að umsókn­ar­ferlið gangi hratt fyrir sig enda stand­ist Finn­land og Sví­þjóð nú þegar þau við­mið sem krafa er gerð um vegna aðildar að banda­lag­inu.

Auglýsing

For­sæt­is­ráð­herrar Íslands, Dan­merkur og Nor­egs taka jafn­framt fram að ríkin muni aðstoða Finn­land og Sví­þjóð með öllum ráðum verði öryggi þeirra ógnað áður en aðild að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu gengur í gildi.

Fyrsta sinn sem for­maður VG myndi styðja stækkun NATO

Kjarn­inn spurði Katrínu Jak­obs­dóttir for­mann Vinstri grænna (VG) og for­sæt­is­ráð­herra í byrjun maí hvort hún myndi styðja við stækkun NATO og svar­aði hún að hún myndi styðja þá ákvörðun sem Finn­land og Sví­­þjóð myndu taka.

Það væri í fyrsta sinn sem for­­maður VG myndi styðja við stækkun NATO en fyrrum for­­maður flokks­ins, Stein­grímur J. Sig­­fús­­son, og þing­­menn flokks­ins hafa ítrekar greint frá þeirri afstöðu sinni að Ísland eigi ekki að vera í NATO og þau styddu ekki stækkun banda­lags­ins.

Yfirlýsing frá Danmörku, Íslandi og Noregi um ákvörðun Finnlands og Svíþjóðar að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu

Við styðjum ein­dregið ákvörðun Finn­lands og Sví­þjóðar að sækja um aðild að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu.

Ákvörðun Finn­lands og Sví­þjóðar um að sækja um aðild að banda­lag­inu bygg­ist á full­veld­is­rétti ríkj­anna til að ákveða fyr­ir­komu­lag eigin örygg­is­mála. Finn­land og Sví­þjóð eiga rétt á því að fylgja aðild­ar­ferli sínu eftir án nokk­urra til­rauna til utan­að­kom­andi afskipta.

Finn­land og Sví­þjóð deila grund­vall­ar­gildum Atl­ants­hafs­banda­lags­ins og munu efla sam­eig­in­legar varnir og öryggi á Evr­ó-Atl­ants­hafs­svæð­inu.

Við munum eftir fremsta megni tryggja að aðild­ar­ferlið gangi hratt fyrir sig þar sem Finn­land og Sví­þjóð stand­ast nú þegar við­mið sem gerð er krafa um vegna aðildar að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu. Liðs­afli ríkj­anna stenst staðla banda­lags­ins og unnt er að tryggja sam­hæfni með liðsafla banda­lags­ríkja. Við höfum þjálfað og æft saman í mörg ár. Við metum mik­ils veiga­mikið fram­lag Finn­lands og Sví­þjóðar til verk­efna og aðgerða Atl­ants­hafs­banda­lags­ins.

Öryggi Finn­lands og Sví­þjóðar varðar okkur öll. Verði gerð aðför að öryggi Finn­lands eða Sví­þjóðar innan land­svæða þeirra, áður en til fullrar aðildar að banda­lag­inu kem­ur, munum við aðstoða þau með öllum til­tækum ráð­um.

Við munum taf­ar­laust hefja und­ir­bún­ing að fram­kvæmd þess­ara örygg­is­skuld­bind­inga. Við munum einnig þróa enn frekar varn­ar­sam­vinnu okkar við Finn­land og Sví­þjóð.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent