Joe Biden, varaforseti Bandaríkjanna, íhugar nú hvort hann eigi að bjóða sig fram til þess að verða forsetaefni Demókrataflokksins fyrir kosningarnar á næsta ári, samkvæmt heimildum The New York Times.
Í umfjöllun New York Times segir að ráðgjafar Bidens séu byrjaðir að heyra hljóðið í háttsettum mönnum innan flokksins sem og þeim styrktaraðilum sem hafa ekki lýst yfir stuðningi við Hillary Clinton.
Fimm demókratar hafa nú þegar lýst því yfir að þeir sækist eftir að verða forsetaefni flokksins: Hillary, Bernie Sanders, Martin O'Malley, Jim Webb og Lincoln Chafee. Hillary nýtur langmestra vinsælda, en samkvæmt skoðanakönnunum fengi hún 55% fylgi, en Sanders aðeins 17%.
Joe Biden is thinking about jumping into the 2016 race, @NYTimesDowd writes. http://t.co/lRTVjikGGO pic.twitter.com/bb8IuK0U40
— The New York Times (@nytimes) August 1, 2015