Jóla- og áramóta minnisblað rætt á ráðherrafundi og ríkisstjórnarfundi

Sóttvarnaráðstafanir sem gilda munu yfir jól og áramót verða kynntar að loknum ríkisstjórnarfundi á morgun.

Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fékk minnisblað frá sóttvarnalækni í morgun þar sem má finna tillögur að sóttvarnaráðstöfunum sem gilda munu yfir jól og áramót.
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra fékk minnisblað frá sóttvarnalækni í morgun þar sem má finna tillögur að sóttvarnaráðstöfunum sem gilda munu yfir jól og áramót.
Auglýsing

Minn­is­blað sem Þórólfur Guðna­son sótt­varna­læknir skil­aði Willum Þór Þórs­syni heil­brigð­is­ráð­herra í morgun með til­lögum að inn­an­lands­að­gerðum um jól og ára­mót verður rætt á fundi ráð­herra­nefndar síð­deg­is. Þá verður efni minn­is­blaðs­ins rætt á rík­is­stjórn­ar­fundi í fyrra­mál­ið. Að honum loknum verða breyt­ingar á sótt­varna­ráð­stöf­un­um, ef ein­hverjar verða, kynnt­ar.

Um 200 smit hafa greinst hér á landi síð­ustu daga. Nýtt afbrigði kór­ónu­veirunn­ar, ómíkron, hefur einnig verið að sækja í sig veðrið hér á landi. Már Krist­jáns­son, yfir­læknir smit­sjúk­dóma­deildar Land­spít­ala, telur að með áfram­hald­andi þróun megi búast við um sex hund­ruð smitum dag­lega. Í við­tali á Morg­un­út­varp­inu á Rás 2 í morgun bar hann stöð­una hér á landi saman við stöð­una í Dan­mörku og Nor­egi. Már segir að með þessu áfram­haldi gætu sex lagst inn á spít­ala vegna Covid-19 dag­lega og segir hann að spít­al­inn muni ekki ráða við það ofan á það álag sem þar er fyr­ir.

Auglýsing

Frá því að fjórða bylgjan hófst í lok júní hafa 233 lagst inn á spít­ala. Í dag liggja 11 sjúk­lingar á Land­spít­ala með Covid-19, tveir þeirra eru á gjör­gæslu og annar í önd­un­ar­vél. Sjö­tugur karl­maður lést á spít­al­anum af völdum Covid-19 um helg­ina.

Líkt og fyrr segir verður efni minn­is­blaðs sótt­varna­læknis rætt á fundi ráð­herra­nefndar í dag og á rík­is­stjórn­ar­fundi í fyrra­mál­ið. Að þeim fundi loknu ætti að skýr­ast hvaða sótt­varna­að­gerðir verða í gildi yfir jóla­há­tíð­ina.

Núver­andi reglu­­gerð um tak­­mark­­anir á sam­komum fólks vegna far­­sóttar tóku gildi 12. nóv­­em­ber og gilda til 22. des­em­ber. Sam­­kvæmt þeim mega 50 manns koma saman í sama rými en heim­ilt er að hafa allt að 500 manns í rými á við­­burðum gegn því að fólk fram­­vísi nei­­kvæðu hrað­­prófi og að 1 metra nálægð­­ar­­mörk séu tryggð. Ef það er ekki hægt skal fólk bera grímu fyrir vit­­um.

Eins metra nálægð­­ar­reglan er svo almenn, t.d. á vinn­u­­stöðum og í annarri starf­­semi, eins og segir í regl­un­­um. Það sama á við um grímu­­skyldu. Hana skal virða þar sem ekki er unnt að tryggja eins metra bil milli ótengdra ein­stak­l­inga.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent