Formannafundur ASÍ fordæmir með öllu tilraunir til niðurbrots á skipulagðri verkalýðshreyfingu og varar sterklega við uppgangi gulra stéttarfélaga. Þetta kemur fram í nýrri ályktun formannafundar ASÍ um tilraunir til niðurbrots á verkalýðshreyfingunni.
„Nýjasta dæmið um tilraunir til að fara gegn skipulagðri verkalýðshreyfingu eru samningar milli Play og hins Íslenska flugstéttarfélags sem ætlað er að móta ramma utan um kjör flugfreyja- og flugþjóna hjá flugfélaginu Play. Samningarnir kveða á um lakari kjör og réttindi en hafa þekkst á íslenskum vinnumarkaði og enn er á huldu hvort þeir hafa verið samþykktir af vinnandi fólki sem á allt sitt undir þeim, líkt og lög og leikreglur á vinnumarkaði gera ráð fyrir,“ segir í ályktuninni.
Formannafundurinn kallar eftir því að Samtök atvinnulífsins og Samtök aðila í ferðaþjónustu fordæmi framgöngu Play og sendi út skýr skilaboð um að þessi háttsemi verði ekki liðin á íslenskum vinnumarkaði.
Kjarasamningurinn skuli samþykktir af starfsfólki. „Krafan er skýr: að Play gangi til kjarasamninga við það launafólk sem á að vinna samkvæmt þessum kjarasamningum, sá samningur verði lagður í dóm starfsfólks og þar með verði leikreglur á íslenskum vinnumarkaði virtar.“
Gul stéttarfélög geri lakari kjarasamninga
Í ályktuninni segir að gul stéttarfélög einkennist af því að vera undir áhrifavaldi atvinnurekenda, beint eða óbeint og að slík félög sæki sér ekki styrk til heildarsamtaka launafólks heldur standi utan þeirra. „Slík félög eru þekkt fyrir að gera lakari kjarasamninga en frjáls og skipulögð verkalýðshreyfing og grafa þannig undan almennum launakjörum í landinu.“
ASÍ og aðildarfélög þess muni standa gegn hvers konar tilraunum til að brjóta á bak aftur skipulagðri verkalýðshreyfingu enda sé gríðarlegur munur á lífskjörum almennings „í löndum þar sem skipulögð verkalýðshreyfing hefur verið brotin á bak aftur annars vegar og í löndum þar sem verkalýðshreyfingin stendur styrkum fótum hins vegar.“