Þeir Gísli Dúa Hjörleifsson og Mikkel R. Vossen Rasmussen eru að safna á Karolina Fund fyrir útgáfu bókar um týndan geimfara á hálendi Íslands. Þetta er ljósmyndabók með gríðarlega fallegum ljósmyndum eftir Gísla þar sem sjá má geimfara í náttúru Íslands.
Hugmyndin kviknaði þegar Mikkel fór í geimævintýri upp að mörkum geimsins og kom til baka sem geimfari. Nokkrum árum síðar fóru þeir Gísli og Mikkel til Íslands til að mynda súrrealískar myndir í náttúru Íslands. Í þessum ferðum kynntist Mikkel, sem kemur frá Danmörku, íslensku fólki, menningu, þjóðtrú og hjátrú. Hann byrjaði á að skrifa dagbók um allt það sem hann upplifði og hugleiðingar sínar um landið, um náttúruna, um hjátrúna og fólkið sem bjó á þessari eyju. Eftir að hafa ferðast um Ísland í nokkur ár þá þróaðist hugmyndin smátt og smátt yfir í stærra verkefni.
Byrjaði að mynda vin sinn sem hálfnaktan engil
Getur þú sagt okkur frá týnda geimfaranum á hálendi Íslands. Hvaðan kom þessi hugmynd og hvernig þróaðist hún?
„Í raun byrjaði ég að mynda vin minn Mikkel sem hálfnaktan engil, ég á stundum mínar stundir þar sem ég þarf að koma út mínu hugmyndaafli og geri það myndrænt á milli þess að vinna sem ljósmyndari í auglýsinga og heimildagerð.
Hugmyndin byrjaði þegar Mikkel fór í ferðalag upp að mörkum geimsins. Hann var búinn að safna fyrir þessari ferð frá því að hann var smástrákur. Og tók þetta ferðalag um þrjá mánuði með þjálfun og öllu tilheyrandi.
Í þessari ferð þá verslaði hann undirföt rússnenskra geimfara og kom með heim til Danmerkur. Óvart þá sýndi hann mér þennan búning og hugurinn fór að snúast um að gera eitthvað meira með hann. Ég fór í hjálmaleit á netinu og fann einstakan hjálm sem einungis 1000 stykki voru til af á þeim tíma. Og við byrjuðum að prufumynda geimfarann hér í Danmörk."
Það verður að segjast að þessar myndir eru einstaklega góðar og skemmtilegar. Spilar náttúra landsins inn í hugmyndina eða vill bara svo til að geimfarinn lenti hér?
„Takk fyrir það! Jú ég er með smá hobby starf á haustin fyrir austan og hef stundum verið þar síðasliðin ár. Mikkel fékk að fljóta með mér frá 2010 þar sem við tókum búninginn með en grunnhugmyndin var að mynda týndan Geimfara á hálendi Íslands á milli þess er ég vann. Oft á milli stunda þá fór hugurinn að spinnast og Mikkel byrjaði að skrifa dagbók í þessum ferðum. Eðlilega fyrir honum voru þessar ferðir stórmerkilegar enda sváfum við bara úti og hann upplifði ýmislegt furðulegt og heyrði okkar dramatísku þjóðsögur.
Ef svo má segja þá upplifði hann sig sem einfara og gat alveg sett sig í spor geimfara sem kom fyrst í heiminn á miðhálendi Íslands. Og vísindaskáldsagan hófst. Við hittum marga einstaklinga sem allir höfðu eitthvað að segja en mest spennandi uppgötvun okkar er sönnun um tilvist huldufólks á Íslandi. En hana verður einungis hægt að lesa um í bókinni."
Geimfarinn á sér framhald
Hvert fer svo geimfarinn næst? Mun verkefnið eiga sér framhaldslíf?
„Geimfarinn á sér framhald, ekki spurning. Við erum nú þegar búnir að leggja inn drög að framhaldinu, en nú erum við að leggja okkur alla fram við að klára bókina og ná okkar markmiðum sem fyrst á karolinafund. Þetta er mjög skemmtilegt verkefni og búið að vera lengi í bígerð. Ég vil meina að góðir hlutir gerast hægt.
Við erum þessa stundina að setja upp vefsíðu þar sem fólk getur lesið meira um ferðirnar og upplýsingar um bókin á. www.findingthelostastronat.com En sú vinna verður búin í desember."