Hvaða áhrif hafa matreiðslubækur á taugaáföll kvenna?

„Hvað ef sósan klikkar?“ er leikrit eftir Gunnelu Hólmarsdóttur. Það byggir á áhuga hennar á taugaáföllum kvenna og hvað það sé í umhverfi þeirra sem veldur öllu þessu álagi. Hún safnar fyrir verkefninu á Karolina Fund.

417C8645-5F4B-4A95-BD44-A79B63B29B8D.jpeg
Auglýsing

Gunn­ella Hólmars­dóttir er leik­kona og leik­stjóri. Hún er gift, tveggja barna móðir sem hefur í vetur stundað meist­ara­nám í sviðs­listum við Lista­há­skóla Íslands. Þar hefur hún verið að rann­saka áhrif mat­reiðslu­bóka á tauga­á­föll kvenna. Hún hefur nú skrifað leik­verkið Hvað ef sósan klikk­ar?, út frá þeirri rann­sókn. Verkið er sýnt um þessar mundir í Lista­há­skóla Íslands en fer síðan í vor á svið í Tjarn­ar­bíó.

Gunn­ella segir hug­mynd­ina að verk­efn­inu hafa kviknað þegar hún sótti um áður­nefnt meist­ara­nám. Þá þurfti hún að leggja fram rann­sókn­ar­spurn­ingu í umsókn­inni. „Ég man nú ekki nákvæm­lega hver sú spurn­ing var en ég man að mig lang­aði að rann­saka hvað það væri sem væri valdur af því að margar konur í minni fjöl­skyldu hafi fengið svo kallað tauga­á­fall og þar með talin ég sjálf.

Hvað ef sósan klikkar? Hvað þá?

Ég byrj­aði önn­ina með þá spurn­ingu í huga en þegar ég fór að vinna og grúska, lesa og skrifa fóru að koma upp spurn­ing­ar. Ég fór að skoða hvað það væri eig­in­lega í mínu umhverfi sem væri valdur að öllu þessu álagi. Við vitum alveg að sam­fé­lags­miðlar eru að hafa slæm áhrif á sjálfs­mynd okkar og sér­stak­lega ungra kvenna. Við vitum að aug­lýs­ing­ar, sjón­varp og popp kúltúr inn hefur haft áhrif á okkur en þegar ég fór að kafa dýpra fór ég að hugsa hvað væri raun­veru­lega að hafa áhrif á mig. Eða hvað væri svona í mínu umhverfi sem fengi mig til að stress­ast og fyll­ast kvíða og fór ég þá að leiða hug­ann að mat­reiðslu­bókum og hvaða áhrif þær hafa haft á mig. Ég ræddi mikið við ömmu mína sem hefur safnað mat­reiðslu­bókum nán­ast allt sitt líf og hefur unun af því að elda. Ég fékk svo leyfi hjá henni til að fara með hana í sum­ar­bú­stað þar sem við dvöldum í 4 daga og ég tók upp öll okkar samtöl. Þau sam­töl voru algjört konfekt fyrir verkið og urðu því hluti af verk­in­u.“ 

Auglýsing
Hún segir mat­reiðslu­bækur vera áhuga­verðar heim­ildir um líf fólks. „Yf­ir­leitt hafa slíkar bækur verið nýttar í mat­ar­fræði­legar rann­sókn­ir, en nú eru þær í vax­andi mæli not­aðar til að rann­saka hlut­verk hús­mæðra og hvernig það hefur breyst. Er pressan um að vera hin góða hús­móðir búin að lúta lægra haldi fyrir frama­kon­unni eða þarf hin nútíma kona mögu­lega að vera bæði frama­kona, góð hús­móð­ir, fal­leg og í góðu lík­am­legu formi? Þarf hún mögu­lega að fylgj­ast enn betur með „tísku“ elda­mennsk­unnar en áður þurfti? Þarf hún að kunna að elda Ketó – LKL – Vegan – glút­en­frítt og syk­ur­laust? Hugsa um börnin og súr­inn? Sinna hund­in­um, mak­an­um, vin­kon­un­um, tengdó og mæta í Kok­teila­klúbb­inn? Hafa tíma fyrir rækt­ina, þvott­inn, veik­inda­daga barn­anna og allt það sem „Þriðja vakt­in“ inni­ber! Passa svo að deila rétta efn­inu á sam­fé­lags­miðl­unum svo hún nái að skemmta „fylgj­end­um“ sínum þar.  Þetta hljómar óraun­hæft og myndi ég segja að það væri akkúrat mál­ið.“

Að sögn Gunn­elu er verkið heim­ild­ar­verk. Blanda af spuna heim­ildum og fyr­ir­fram skrif­uðum sen­um. „Þegar áhorf­and­inn gengur inn í sal­inn er hann að koma í sjón­varps­sal þar sem er að hefj­ast bein útsend­ing af mat­reiðslu­þætt­inum Hvað ef sósan klikk­ar? Í þessum þætti þarf ég, þátta­stjórn­and­inn að stýra upp­töku, skemmta áhorf­end­um, sjá um aug­lýs­ingar og elda allan mat­inn frá grunni, og það með klukk­una tif­andi yfir mér!

Hér er hægt að skoða söfn­un­ina og taka þátt í að koma því á fjal­irn­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk