Nýtt íslenskt spurningaspil þar sem giskað er á hvort meðspilarar svari rétt eða rangt

Tveir áhugamenn um borðspil höfðu áhyggjur af því að vinir og fjölskyldur skiptust í tvær fylkingar varðandi spurningaspil. Sumir elska þau, en aðrir þola þau ekki. Þeir telja sig hafa leyst þetta með spili sem hægt að spila við alla.

Guðmundur Egill  og Ásgeir með spilið sitt.
Guðmundur Egill og Ásgeir með spilið sitt.
Auglýsing

Guð­mundur Egill Berg­steins­son er 30 ára hug­bún­að­ar­verk­fræð­ingur úr Grinda­vík sem er mik­ill miklir spila­á­huga­maður og hefur verið með lang­þráðan draum að gefa út nýtt íslenskt borð­spil sem hentar fyrir alla. Nú er sá draumur að verða að veru­leika með spil­inu “Gott gisk“, sem hann safnar nú fyrir útgáfu á á Karol­ina Fund.

Guð­mundur segir að hug­myndin að spil­inu hafi komið þegar hann og Ágeir Frí­manns­son, annar spila­höf­unda, voru á spila­kvöldi fyrir jól í fyrra og að ræða hvað það vant­aði fersk­leika á íslenskan spurn­inga­spila mark­að. „Við ræddum hvernig vinir og fjöl­skyldur skipt­ast í tvær fylk­ingar varð­andi spurn­inga­spil, sumir elska þau og aðrir gjör­sam­lega þola þau ekki.”

Kvöldið eftir hitt­ust þeir og komum með hug­mynd­ina af nýrri teg­und af spurn­inga­spili sem snýst ekki bara um að svara spurn­ingum rétt, heldur einnig um að giska hvort að með­spil­arar þínir muni svara spurn­ingum rétt eða rangt. „Þetta tók ekki langan tíma að koma með hug­mynd­ina, við þurfum bara að finna út hvernig við gerum spurn­inga­spil skemmti­leg fyrir alla fjöl­skyld­una, ekki bara þá sem lesa alfræði­orða­bækur fyrir svefn­inn. Hug­myndin kom, hringdum í vini okkar í algjörri oflæti og sögðu að þeir yrðu að koma heim að prófa nýja spilið okkar og það svo sann­ar­lega sló í gegn.”

Auglýsing
Sú hug­mynd fékk síðar nafnið „Gott gisk“, sem er spurn­inga­spil sem snýst um að giska á hvort and­stæð­ing­arnir svari sínum spurn­ingum rétt eða rangt. Mark­miðið er að safna stigum og fást þau á tvo vegu. Ann­ars vegar með því að svara spurn­ingum rétt og hins vegar með því að giska á útkomu spurn­inga and­stæð­ing­anna.

Þegar hug­myndin var nokkuð fast­mótuð tók við ferli við að semja spurn­ingar fyrir spil­ið. „Við vildum hafa þetta veg­legt spil með tvö þús­und skemmti­legum spurn­ing­um. Hvert ein­asta kvöld í febr­ú­ar, mars, apríl var mark­miðið að útbúa tíu spurn­ingar á hverju kvöldi. Það var ekk­ert grín-verk­efni, en með hjálp vina og vanda­manna komumst við á leið­ar­enda og sömdum á end­anum tvö þús­und ótrú­lega skemmti­legar spurn­ing­ar.“

Hann seg­ist hafa verið í enda­lausri bar­áttu allt mitt líf að plata vini og fjöl­skyldu að spila borð­spil með sér. „Sú bar­átta hefur oft reynst erf­ið, en loks­ins held ég að mér hafi tek­ist það með því að gera spurn­inga­spil sem hentar fyrir bók­staf­lega alla, alla­veg­ana tókst mér að spila það með ömmu og litlu frændsystk­inum mínum og allir skemmtu sér kon­ung­lega.“

Hægt er að styrkja verk­efnið hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFólk