Lúðrasveitin Svanur var stofnuð 16. nóvember 1930 og er því 85 ára árið 2015. Meðlimir hennar hafa verið ansi margir en að yfirleitt spila á bilinu 35-45 manns með sveitinni. Sveitin hefur þjónað sem uppeldisstöð fyrir blásaradeild Sinfóníunnar og ef heyrist í lúðrum í popplögum, er nokkuð ljóst að einhverjir þar hafa komið við í Svaninum. Árið 1962 kom Svanurinn sér upp búningum sem hafa verið einkennandi fyrir sveitina síðan þá - bláir að lit og að bandarískri fyrirmynd. Enda mikið að gerast í lúðrasveitum þar í landi.
Svanurinn spilaði inn á fyrstu Stereo hljómplötu Íslands árið 1970 undir stjórn Jóns Sigurðssonar, sem Fálkinn gaf út.
Um þessar mundir stendur yfir söfnun á Karolina Fund fyrir nýjum búningum fyrir hljómsveitarmeðlimi. Kjarninn ræddi við Þorkel Harðarson, kvikmyndagerðarmann og klarinettuleikara (með lúðrasveitarblæti), um söfnunina og ýmislegt annað sem skiptir öllu máli.
Hljómsveitin Svanmur á Þjóðlagahátíð á Siglufirði.
Bókstaflega spilað rassinn úr buxunum
Er það rétt að að þið séuð búin að spila rassinn úr buxunum?
"Í dag er Svanurinn að ákveðnu leyti búinn að spila rassinn úr buxunum, Ekki tónlistarlega séð, langt í frá - en búningalega séð. Búningar sveitarinnar eru orðnir gamlir og úr sér gengnir og kominn tími til að endurnýja þá."
Hvaða leið fóruð þið í ákvörðuninni varðandi útlitið á búningunum?
"Við ákváðum að fara þá leið að láta hanna nýja búninga á sveitina og fengum Rögnu Fróða, fatahönnuð og fyrrum hornleikara í Svaninum til þess. Nýju búningarnir kallast á við þá gömlu í litum og útliti - en eru með nútímalegri sniði og afar glæsilegir. Þetta er dýrt spaug að endurnýja búningasafnið á einu bretti og þess vegna beittum við ýmsum ráðum við fjáröflunina - meðal annars erum við á Karolina Fund um þessar mundir að reka smiðshöggið á fjáröflunina.
Búningarnir sem hljómsveitin hyggst láta útbúa á sig.
Styrktu og fáðu að stjórna lúðrasveit
Þegar fólk styrkir ykkur á Karolina Fund, getur það átt von á einhverju góðu í staðinn?
"Á Karolina Fund erum við að bjóða ýmislegt skemmtilegt ef fólk ákveður að heita á okkur - rúsínan í pylsuendanum er auðvitað tækifæri til að stjórna einu lagi með fullskipaðri lúðrasveit á tónleikum með okkur! Þetta er hin fullkomna gjöf fyrir þann sem allt á og ekkert vantar. Síðan erum við að bjóða upptökur með sveitinni á DVD og CD ásamt miða á tónleika. Og auðvitað erum við að bjóða spilamennskur líka - allt frá kvartettum og kvintettum upp í fullskipaða lúðrasveit. Til dæmis ef einhver ætlar að játa ást sína með tilþrifum, er hægt að fá lúðurþeytara til að aðstoða sig við stemninguna. Eða ef fólk ætlar í pottinn og er í mjög flippuðu skapi, þá getur það fengið lúðrasveit til að hjálpa til að við skapa sólarstemningu með smá Sambatakri. Það er allt hægt með lúðrasveit til að skapa góða stemningu."
Mikil eftirspurn eftir naktri lúðrasveit
Þorkell segir að það sem hafi komið þeim á óvart við fjáröflunina var að hljómsveitin var eitthvað að hóta því að hún myndi þurfa að spila nakin niður Laugaveginn í næstu marseringu, því búningarnir væru að rakna utan af henni - þá kom í ljós að þetta var tvíeggja sverð sem þau höfðu brugðið þarna á loft. "Það er mikil eftirspurn eftir naktri lúðrasveit, meira að segja er útgefandi búinn að hafa samband við okkur til að gefa út dagatal með nakinni lúðrasveit. Það þarf reyndar að finna réttan prís á svoleiðis sveit - lögmál markaðarins um framboð og eftirspurn hljóta að ráða þar eins og annarstaðar. Sjáum til hvað setur en fjáröflunin gengur ágætlega um þessar mundir og nú eru síðustu dagarnir í henni að renna upp. Sjáum til hvort ekki tekst að fullfjármagna þetta á Karolina, með aðstoð lesenda með lúðrasveitarblæti eða lúðrasveitar eitrun á háu stigi."
https://vimeo.com/130158835