Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur er að vinna að útgáfu sólóplatna sinna, Kvöldvaka, Amma og Ölduslóð á vínyl og freistar þess að hópfjármagna útgáfuna á Karolina Fund. Sjálfur segir hann ekkert notarlegra en að „skella hlýlegri þjóðlagatónlistinni með ólgandi melankólíu og nötrandi vonarstrái á fóninn þegar tilvistarkreppan nagar undirstöður sálarinnar eða jafnvel kúra sig undir brakandi kunnugleik Ömmuplötunnar á köldu vetrarkvöldi."
Ættaður alls staðar að
Hverjar eru rætur þínar og hvenær fórstu að vinna að tónlist?
"Ég er nú ættaður alls staðar að á Íslandi, m.a. að austan, Borgarfirði eystri og Álftafirði og svo frá Barðaströndinni og Breiðafirði, Grindavík og Tröllaskaga. Þessi mixtúra hefur reynst afskaplega flókin og illskýranleg gegnum tíðina. Svo yfirleitt segist ég bara vera listfengur landsbyggðarlúði.
Ég bý núna í Reykjavík með fjölskyldunni minni og geri út þaðan. Ég byrjaði að starfa sem tónlistarmaður rétt fyrir hrun. Það vatt hratt upp á sig og ég hætti í öruggri og traustri innivinnu næstum sama dag og Geir H. Haarde sagði „Guð blessi Ísland“. Það var gáfulegt. Ég hef semsagt starfað alfarið við tónlist síðan 2008 og verið mikið á tónleikaferðalögum undanfarin ár samfara útgáfu og öðru tónlistarstarfi. Svo hef ég verið að teygja mig inn í leikhús líka undanfarið, unnið með íslenskum og þýskum leikhópum og samið tónlist fyrir nokkur leikrit.
Eftir undanfarin sjö ár og allt það ströggl og erfiðleika sem þeim hafa fylgt get ég ekki hugsað mér að vinna annað starf en tónlist."
https://soundcloud.com/svavarknutur/emotional-anorexic
Vill koma öllum sólóplötunum á vínyl
Segðu aðeins frá tónlistarverkefninu se þú ert að reyna að hópfjármagna?
"Verkefnið felst í því annars vegar að koma öllum sólóplötunum mínum hingað til á vínyl, sem er afskaplega kostnaðarsamt verkefni í sjálfu sér, en einnig að gefa út, í tilefni af því, 12 tommu EP-plötu með fjórum lögum, teknum upp á tónleikum, heima hjá vinum og svo í vonskuveðri, heima í stofu.
Í því tilefni ákvað ég, í samráði við útgefandann minn, Dimmu útgáfu, að láta gera algerlega ný koverlistaverk fyrir plöturnar. Dóttir mín, Dagbjört Lilja, hafði teiknað myndirnar á geisladiskaútgáfurnar á sínum tíma, en við hugsuðum að í stað þess að blása þær út og láta plöturnar líta eins út, bara með stækkuðum myndum, væri flott að endurhugsa pælingarnar fyrir þennan stóra „striga“. Það kallaði á ný kóverlistaverk og algerlega nýja útlitshönnun.
Fyrir EP plötuna, Songs of Weltschmerz, Waldeinsamkeit and Wanderlust (WWW), var síðan fylgt nýrri hugmynd, en hún dregur svolítið saman pælingarnar á Kvöldvöku og Ölduslóð í eina stutta sögu."
Hvað er líkt og ólíkt með þessum þremur sólóplötum: Kvöldvöku, Ömmu og Ölduslóð?
"Kvöldvaka og Ölduslóð eru líkari innbyrðis, enda eru þar frumsamin lög. Þær segja hvor sína sögu og ég raðaði lögunum upp þannig framvinda sögunnar gengur upp. Hún á líka að ganga upp eins og vínylplata skiptist á hliðar, svo það er mjög skemmtilegt. Ég hugsaði plöturnar alltaf þannig að hægt yrði að gefa þær út á vínyl, út frá lengd.
Þær eru samt örlítið ólíkar innbyrðis. Kvöldvaka fjallar um brekkuna frá eymd til endurlausnar, en Ölduslóð er að taka á hamingjunni sem því verkefni sem hún er, með öllu veseninu og þrautunum sem því fylgja.
Amma, hins vegar, sker sig út þar sem á henni eru bara íslensk sönglög, „lög fyrir ömmu mína“. Mér þykir afskaplega vænt um þá plötu og það var rosalega gaman að taka svona naktar, hlýjar, trúbadoraútgáfur af sígildum íslenskum lögum, sem fólk er kannski vanara að heyra í píanóútsetningum.
Svo kemur EP platan (WWW) með læv og strípuðum útgáfum af tveimur lögum af Kvöldvöku og Ölduslóð, einu lagi af næstu plötu og svo lagi sem er eiginlega eins og af plötunni „Oma“, ef Amma hefði verið gefin út í Þýskalandi, In Stiller Nacht, þýskt þjóðlag í útsetningu Johannesar Brahms, en endurútsett fyrir gítar."
Nýjar myndir af plötunum
Hverju finnst þér breyta að gefa tónlistina út á vínyl?
"Mér finnst aðallega skemmtilegt að endurhugsa plötuumslögin og listina á þeim, að gefa fólki algerlega nýjar myndir af plötunum. Svo er náttúrulega verið að láta undan ákveðnum þrýstingi frá þessum vínylnördum sem eru alltaf að tuða um að enginn sé maður með mönnum nema maður gefi út á vínyl. Það má líka. En það hefur alltaf staðið til að þessar plötur kæmu út á vínyl. Það hefði verið skemmtilegt að gera það samhliða upprunalegu útgáfunni, en það er eiginlega ennþá skemmtilegra að gera þetta svona saman sem eitt verkefni, því það bauð upp á þessa endurhugsun og nýtt samhengi. Ég er bara ótrúlega spenntur."
Hægt er að skoða verkefnið nánar og leggja því lið hér
https://soundcloud.com/svavarknutur/while-the-world-burns