Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík munu undirrita viljayfirlýsingu um byggingu nýrrar þjóðarhallar í innanhúsíþróttum í dag klukkan 15:30. Undirritunin fer fram í Laugardalnum sem bendir til þess að samkomulag hafi náðst um að þjóðarhöll fyrir inniíþróttir muni rísa á því svæði.
Kjarninn greindi frá því á miðvikudag að til stæði að niðurstaða í málinu, sem hefur verið í miklum hnút, yrði kynnt í dag. Það var kynnt í borgarráði Reykjavíkur í gær og verður á dagskrá ríkisstjórnarfundar í dag. Í frétt Kjarnans var sagt að stíf samtöl hafi átt sér stað undanfarið um hvort ráðist yrði í byggingu þjóðarhallar í Laugardal. Borgarstjórinn í Reykjavík hafði gefið ríkinu frest fram í byrjun maí til að leggja fram fé í verkefnið. Næðist það ekki myndi borgin taka tvo milljarða króna sem hún hefur sett til hliðar fyrir það og nota þá til að byggja nýtt íþróttahús fyrir iðkendur Þróttar og Ármanns í Laugardal.
Í samtali við Kjarnann á miðvikudag sagði Dagur að niðurstaða væri fyrirliggjandi en aðstoðarmaður Ásmundar Einars neitaði því síðar sama dag í samtali við RÚV.
Gæti kostað hátt í níu milljarða
Laugardalshöllin hefur verið heimili landsliða Íslands í körfubolta og handbolta í áratugi. Hún er barn síns tíma og er rekin á undanþágu þar sem hún uppfyllir ekki alþjóðlega staðla.
Vilji hefur verið fyrir því að byggja þetta mannvirki, svokallaða þjóðarhöll, í Laugardalnum þar sem aðrir þjóðarleikvangar eru sem stendur.
Á sama tíma er sú staða uppi að gríðarlega fjölmennar iðkendadeildir hverfisfélaganna Þróttar og Ármanns eiga ekkert íþróttahús. Mikill þrýstingur hefur verið frá félögunum og íbúum hverfisins um að ráða þar bót á. Hugmyndin um þjóðarhöll felur í sér að þau félög gætu nýtt hana undir sína starfsemi og þannig yrðu tvö úrlausnarefni leyst með einni framkvæmd. Sá hagur á að vera á þeirri leið fyrir Þrótt og Ármann að í þjóðarhöll verði fjórir æfingavellir fyrir börn og ungmenni en í íþróttahúsi fyrir félögin yrðu vellirnir tveir.
Borgarstjóri gaf tímafrest
Ráðamenn þjóðarinnar hafa ítrekað lofað því að ráðist yrði í verkefnið, sem yrði að vera samvinnuverkefni ríkis og borgar. Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, sagði í desember síðastliðnum að hans hugur stæði til þess að á þessu kjörtímabili yrði hægt að fara á heimaleiki á nýjum þjóðarleikvangi.
Svo gerðist lítið sem ekkert, þangað til á opnum íbúafundi borgarstjóra í Laugarnesskóla 2. mars síðastliðinn. Þar sagði Dagur að Reykjavíkurborg hefði tekið frá fjármuni í uppbyggingu íþróttahúss og að hún héldi því enn opnu hvort þeim yrði best varið í þjóðarhöll eða í sérstakt íþróttahús. Skilyrðið væri að peningarnir, um tveir milljarðar króna, myndu nýtast fyrir börn og ungmenni í Laugardal.
Borgarstjórinn sagði á fundinum að því yrði gefin mjög skammur tími að láta á þetta reyna. „Við erum búin að taka frá peninga fyrir öðrum hvorum kostinum. Þannig að það verður að skýrast á þessu vori, og ég hef rætt það síðast í gær við fleiri en einn ráðherra í ríkisstjórn Íslands, að ríkið ætli sér raunverulega að fara í þetta og setji pening á borðið. Ef að það gerist ekki þá förum við í sérstakt hús fyrir Þrótt og Ármann.“
Hann fékk spurningu úr sal um hversu skammur tími yrði gefin og sagði að slaki yrði gefinn fram að birtingu nýrrar fjármálaáætlunar ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2023-2028. „Ég segi að ef það verða ekki peningar í þetta þar þá meina þau ekkert með þessu. Þannig að fyrir 1. maí þarf þetta að liggja fyrir. Annars legg ég tillögu fyrir borgarráð 5. maí.“
Ekki var gert ráð fyrir sérstökum fjármunum í uppbyggingu þjóðarleikvanga í áætluninni þegar hún var birt í lok mars.
Bjarni vildi að borgin borgaði meira
Þann 24. apríl mætti Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, svo í útvarpsþáttinn Sprengisand á Bylgjunni. Þar gagnrýndi hann Reykjavíkurborg harðlega fyrir hennar afstöðu í þjóðarhallarmálinu. „Mér finnst tölurnar sem REykjavík hefur verið að nefna í þessu sambandi mjög lágar. Tveir milljarðar í hús sem gæti kostað sjö til níu milljarða sem mér finnst ekki há fjárhæð. Garðabær var að reisa íþróttamannvirki um daginn sem kostaði fjóra milljarða.“
Bjarni sagði að það væri sinn skilningur að borgin hefði ákveðið að forgangsraða með öðrum hætti. „Ég verð að segja að ég varð eiginlega hálf orðlaus eftir að stofnað hafði verið hlutafélag til að ræða þetta, að hafa verið í góðri trú um að við værum að fara að ræða einhverja alvöru kostnaðarskiptingu. Þá var það þannig sem sá fundur endaði.“
Nú liggur fyrir niðurstaða í málinu sem verður kynnt verður klukkan 15:30 í dag.