Kauphöllin eldrauð – evrópskir fjárfestar óttast innrás

Nær öll skráðu félögin í Kauphöllinni lækkuðu í verði skömmu eftir opnun markaða í morgun. Hlutabréfaverð í Evrópu og Asíu hefur einnig hrunið eftir því sem óttinn um innrás Rússa í Úkraínu hefur aukist og olíuverð hefur hækkað.

Fjárfestir í kastinu
Auglýsing

Hluta­bréfa­verð allra Kaup­hall­ar­fé­lag­anna, fyrir utan fast­eigna­fé­lag­anna Reita og Eik­ar, lækk­aði á fyrsta klukku­tím­anum eftir að hluta­bréfa­mark­að­ur­inn opn­að­ist hér á landi í morg­un. Virði Icelandair hefur lækkað mest, en bréf í félag­inu hafa hrunið um rúm­lega fimm pró­sent.

Sama þróun hefur átt sér stað á hluta­bréfa­mörk­uðum í Evr­ópu og Asíu. Sam­kvæmt frétt Fin­ancial Times eru fjár­festar farnir að ótt­ast hugs­an­lega inn­rás Rússa í Úkra­ínu, eftir að Olaf Scholz, kansl­ari Þýska­lands, lýsti því yfir að hann ætl­aði til Moskvu til að biðja Vladímir Pútín Rúss­lands­for­seta að ráð­ast ekki inn í land­ið.

For­seti Banda­ríkj­anna, Joe Biden, ræddi einnig við rík­is­stjórn Úkra­ínu í gær­kvöldi, en þar sagði hann að stjórn­völd í Was­hington myndu bregð­ast „fljótt og harka­lega“ við hvers kyns hern­að­ar­að­gerðum Rússa.

Auglýsing

Sam­hliða auk­inni hættu á inn­rás heldur orku­verð á heims­vísu áfram að hækka. Hrá­ol­íu­verð hefur hækkað um 1,8 pró­sent í dag, en sam­kvæmt Fin­ancial Times hefur það ekki verið hærra síðan í sept­em­ber árið 2014. Verð á jarð­gasi í Evr­ópu tók enn hærra stökk á sama tíma, en það er nú 12 pró­sentum hærra.

Mikil verð­lækkun átti sér einnig stað á Wall Street hluta­bréfa­mark­aðnum í New York síð­asta föstu­dag vegna ótta við inn­rás í Úkra­ínu. Þar lækk­aði hluta­bréfa­vísi­talan S&P 500 um tæp tvö pró­sent. en Nas­daq-­vísi­talan, sem inni­heldur fleiri tækni­fyr­ir­tæki, lækk­aði um tæp þrjú pró­sent.

Líkt og Kjarn­inn fjall­aði um í gær um hafa tækni­fyr­ir­tæki og önnur fyr­ir­tæki sem hækk­uðu skarpt í kjöl­far far­ald­urs­ins þurft að þola miklar verð­lækk­anir á hluta­bréfa­mörk­uðum á síð­ustu vik­um. Sum þeirra hafa lent í lausa­fjár­vanda vegna ástands­ins, þar sem erfitt hefur reynst að fjár­magna sig með nýju hluta­fé.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent