KEX Hostel er í efsta sæti á lista vefsíðunnar deeptravelandlifstyle.com yfir óvenjulegustu og bestu gistiheimilin (hostel) á heimsvísu. Önnur gistiheimili á listanum eru Jumbo Stay í Stokkhólmi, Amstel Botel í Amsterdam, Hi - Pigeon Point Light House í Pascadero í Bandaríkjunum og Celica Art Hostel í Ljubljana í Slóveníu.
Gistiheimilin þykja hvert með sínum hætti, skapa óvenjulega eða frábæra upplifun. Á Jumbo Stay fá gestir að upplifa það að gista í Boeing 747 flugvél, sem er staðsett er í Stokkhólmi, Á Amstel Botel gista gestir á báti, á Hi - Pigeon Point Light House er gist við sjávarsíðuna, einangrað frá borgarlífinu, og Art Hostel í Ljubljana er lifandi listagallerí, með frumlegum verkum vítt og breitt um heimilið.
KEX þykir síðan einkar þægilegt og listrænt, samkvæmt umsögninni á vef síðunnar, með mikilli og notalegri sál, þar sem gott sé að njóta lífsins.
Kjarninn hitti einn af stofnendum KEX hostels í fyrra, Pétur Marteinsson, og fór hann þá yfir hugmyndina að baki KEX og hvernig það hefði verið hugsað í upphafi og framþróast í framhaldinu. Hann hefur nú sjálfur yfirgefið hóp aðstandenda gistiheimilisins vinsæla.
https://vimeo.com/105856702