Krafa ÍAV um kyrrsetningu eigna 105 Miðborgar á borði sýslumanns

Deilur verktakafyrirtækis og fjárfestingarsjóðs um riftun verksamnings um byggingu húsa á Kirkjusandi eru nú komnar í þann farveg að verktakafyrirtækið hefur óskað kyrrsetningu eigna fjárfestingarsjóðsins sem heldur utan um húsbygginguna.

Teikning af nýbyggingununum á Kirkjusandi.
Teikning af nýbyggingununum á Kirkjusandi.
Auglýsing

Verk­taka­fyr­ir­tækið ÍAV hefur lagt fram kyrr­setn­ing­ar­kröfu til sýslu­manns vegna deil­unnar sem staðið hefur yfir um stendur um riftun verk­samn­ings sem fyr­ir­tækið var með um bygg­ingu íbúð­ar- og skrif­stofu­hús­næðis á upp­bygg­ing­ar­reit á Kirkju­sandi.

ÍAV fer fram á kyrr­setn­ingu eigna fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins 105 Mið­borg slhf., sem er í stýr­ingu Íslands­sjóða, dótt­ur­fé­lags Íslands­banka, en fjallað er um þetta í útboðs­lýs­ingu vegna hluta­fjár­út­boðs Íslands­banka..

Verk­taka­fyr­ir­tækið stefndi 105 Mið­borg og Íslands­sjóðum til greiðslu tæp­lega 3,9 millj­arða króna snemma í maí­mán­uði. 105 Mið­borg lagði fram gagn­stefnu í síð­ustu viku og fer fram á sömu upp­hæð úr hendi ÍAV. Einnig hefur félagið óskað eftir því við hér­aðs­dóm að þau atriði í bygg­ing­un­unum sem ÍAV byggði og þarf að laga verði met­in. Íslands­sjóðir hafa komið því á fram­færi að félagi telji sig ekki eiga að vera aðilar deil­unnar fyrir dóm­stól­um, enda snú­ist hún um verk­samn­ing á milli verk­taka­fyr­ir­tæk­is­ins og fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins.

Í frétt Morg­un­blaðs­ins í dag segir að kyrr­setn­ing­ar­krafan frá ÍAV snú­ist um að tryggja að ein­hverjar eignir verði eftir félag­inu í 105 Mið­borg til þess að standa straum af mögu­legum skaða­bóta­greiðslum þegar nið­ur­staðan í dóms­mál­inu liggur fyrir og sömu­leiðis að fall­ist hafi verið á að taka kyrr­setn­ing­ar­beiðn­ina fyr­ir.

105 Mið­borg telur kröfu ÍAV illa ígrund­aða

Í tölvu­pósti sem 105 Mið­borg sendi á íbúa í nýbygg­ing­unum á Kirkju­sandi vegna þess­ara mála fyrir skemmstu kemur fram að sjóð­ur­inn telji kyrr­setn­ing­ar­kröfu ÍAV bæði til­efn­is­lausa og illa ígrund­aða.

Einnig segir þar að ef krafan verði sam­þykkt komi það til með að hafa áhrif á getu félags­ins til þess að halda áfram með lag­fær­ingar á íbúðum sem nú standa yfir og aðrar lag­fær­ingar sem eru fyr­ir­liggj­andi.

105 Mið­borg rifti verk­samn­ingi við ÍAV þann 19. febr­úar á þessu ári og réði aðra verk­taka inn í stað­inn. Ástæður fyrir rift­un­inni voru sagðar tafir á fram­kvæmdum og gallar í hús­unum sem þá voru ris­in, sem ÍAV hefði neitað að laga nema gegn frek­ari greiðslu.

Þegar samn­ingum var rift var búið að byggja tvö fjöl­býl­is­hús og steypa upp eitt skrif­stofu­hús­næði.

Auglýsing

Í kjöl­farið á því að riftun verk­samn­ing­ins rataði í fréttir í upp­hafi mars­mán­aðar sendi ÍAV frá sér yfir­lýs­ingu, þar sem fyr­ir­tækið sagð­ist ekki hafa fengið greitt vegna vinnu við verkið frá því í lok nóv­em­ber 2020 og því boðað stöðvun þess í jan­ú­ar­mán­uði.

ÍAV sagði að þær ástæður sem nefndar hefðu verið fyrir rift­un­inni væru að mati fyr­ir­tæk­is­ins fjarri því að vera lög­mætar og að tjón ÍAV vegna aðgerða 105 Mið­borgar og Íslands­sjóða væri veru­legt, bæði vegna verk­kostn­aðar sem ekki hefði feng­ist greiddur og orð­spor­s­miss­is.

Í yfir­lýs­ing­unni sagði sömu­leiðis að ÍAV stæði í þeim skiln­ingi að 105 Mið­borg sem verk­kaupi ætti að greiða fyrir hluta verks­ins sem voru utan samn­ings um bygg­ingu hús­anna þriggja á Kirkju­sandi, en einnig að taka ætti til­lit til utan­að­kom­andi þátta, einkum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, við ákvörðun verk­tíma og við­bót­ar­kostn­að­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent