Kristrún vill að aðildarviðræður að ESB verði lagðar í þjóðaratkvæðagreiðslu

Kristrún Frostadóttir segir ekkert hafa breyst í afstöðu flokks síns gagnvart Evrópusambandinu. Sjálf sé hún stuðningsmaður aðildar. Fyrsta skrefið sem þurfi að stíga sé að spyrja þjóðina hvort hún vilji fara í þetta verkefni.

Kristrún Frostadóttir Mynd: Baldur Kristjánsson
Auglýsing

Kristrún Frosta­dótt­ir, sem býður sig fram til að verða for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, segir að stefna flokks­ins hvað varðar aðild að Evr­ópu­sam­band­inu (ESB) sé alveg skýr og verði það áfram. „Við höfum verið fylgj­andi Evr­ópu­sam­bands­að­ild. Ég er sjálf stuðn­ings­maður Evr­ópu­sam­bands­ins. Ég er hins vegar líka með­vituð um það að eins og er þá er ekki þing­meiri­hluti fyrir mál­inu þótt kann­anir séu að fara upp á við varð­andi við­horf þjóð­ar­innar gagn­vart aðild. Fyrsta skrefið fyrir mér er að spyrja þjóð­ina hvort við eigum að fara í þetta verk­efni. Leggja aðild­ar­við­ræður í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu og taka svo stöð­una í kjöl­far­ið.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­legu við­tali við Kristrúnu við Kjarn­ann sem birt­ist á laug­ar­dag.

Þar segir Kristrún að það umboð sem hún sé að reyna að sækja sér sem for­maður feli í sér að flokk­ur­inn verði að passa að fær­ast ekki of mikið í fang. „Ég vil ekki að fólkið í land­inu haldi að við getum ekki fjár­magnað heil­brigð­is­kerf­ið, komið skikk á hús­næð­is­mál og önnur mik­il­væg vel­ferð­ar­mál án þess að ganga í Evr­ópu­sam­bandið eða að inn­ganga sé eina lausnin á þeim mál­um. Ég vil að fólk með jafn­að­ar­manna­taug geti kosið Sam­fylk­ing­una þótt það sé tor­tryggið gagn­vart aðild að Evr­ópu­sam­band­inu. Það á ekki að koma í veg fyrir að við getum fjár­magnað vel­ferð­ar­kerfin og brotið upp þessa patt­stöðu sem er til stað­ar.“

Meiri­hluti hlynntur aðild sam­kvæmt könn­unum

Inn­ganga Íslands í Evr­ópu­sam­bandið hefur verið á meðal stærstu stefnu­mála Sam­fylk­ing­ar­innar um ára­bil. Sótt var um aðild að sam­band­inu í tíð fyrstu hreinu tveggja flokka vinstri­st­jórn­ar­innar árið 2009 en ekki tókst að klára þær við­ræður áður en kosið var næst, enda hvorki meiri­hluti fyrir aðild innan þings né innan rík­is­stjórnar á þeim tíma.

Auglýsing
Fyrir kosn­­ing­­arnar 2013 lof­aði Bjarni Bene­dikts­­son, for­­maður Sjálf­­stæð­is­­flokks­ins, því að þjóð­­­ar­at­­­kvæða­greiðsla yrði um aðild­­­ar­við­ræð­­­urnar áður en þeim yrði hætt. Það gerði hann til að friða stóran hóp Evr­­­ópu­­­sinna innan síns flokks. Þegar á hólm­inn kom stóð Bjarni ekki við það lof­orð með þeim rökum að það hefði verið „póli­­­tískur ómög­u­­­leiki“ að halda slíka þjóð­­­ar­at­­­kvæða­greiðslu þar sem ráða­­­menn beggja stjórn­­­­­ar­­­flokk­anna sem tóku við völd­um, Sjálf­­­stæð­is­­­flokks og Fram­­­sókn­­­ar, væru á móti aðild. Það varð til þess að lyk­il­­­menn úr ranni Evr­­­ópu­­­sinna yfir­­­­­gáfu Sjálf­­­stæð­is­­­flokk­inn. Og stofn­uðu Við­reisn­. Að­ild­ar­við­ræður voru settar á ís í tíð rík­is­stjórnar Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­son­ar, á árinu 2015, með því að Ísland var tekið af lista um umsókn­ar­ríki. Á þeim tíma var meiri­hluti þjóð­ar­innar á móti aðild, sam­kvæmt könn­un­um. 

Kann­anir sem gerðar hafa verið í ár sýna að við­snún­ingur hefur orðið hjá þjóð­inni í afstöðu til þess, en í Þjóð­ar­púlsi Gallup sem birt­ist í mars voru 47 pró­sent hlynntir inn­göngu á meðan að 33 pró­sent voru á móti. Það var í fyrsta sinn sem mælst hafði meiri­hluti fyrir aðild að Evr­ópu­sam­band­inu í könn­unum fyr­ir­tæk­is­ins frá árinu 2009. Könnun sem Pró­sent gerði í júní sýndi mjög svip­aða nið­ur­stöð­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent