Landsbankinn hf. hefur í dag gefið út skuldabréf að fjárhæð 300 milljónir evra, eða sem nemur um 43 milljörðum króna. Skuldabréfin eru til þriggja ára, bera fasta þrjú prósent vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 295 punkta álagi (2,95 prósent) ofan á millibankavexti í evrum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsbankanum.
Í september 2015 réð Landsbankinn fjárfestingarbankana Citi, Deutsche Bank og J.P. Morgan til þess undirbúa ofangreinda útgáfu. Fjárfestafundir fóru fram dagana 21. – 25. september 2015 í Kaupmannahöfn, Osló, Helsinki, Stokkhólmi og London. Skuldabréfin voru seld til fagfjárfesta og bárust tilboð fyrir 470 milljónir evra frá tæplega 60 fjárfestum. Skuldabréfin eru gefin út undir ein milljarðs evra Euro Medium Term Note (EMTN) skuldabréfaramma Landsbankans og verða bréfin skráð í kauphöllina á Írlandi.
Landsbankinn mun nýta andvirði útgáfunnar til þess að fyrirframgreiða veðtryggð skuldabréf í erlendum gjaldmiðlum sem eru á gjalddaga í október 2016 og að hluta skuldabréf sem eru á gjalddaga í október 2018, sbr. fréttatilkynningu bankans frá 18. september síðastliðinn, að því er segir í tilkynningu.
„Landsbankinn mun áfram vinna að því að breikka og styrkja fjármögnun bankans í erlendum gjaldmiðlum, meðal annars í þeim tilgangi að endurfjármagna útistandandi veðtryggð skuldabréf bankans á hagstæðari kjörum. Í framhaldi af útgáfunni í dag, en með fyrirvara um að slitastjórn LBI hf. ljúki nauðasamningi með greiðslu stöðugleikaframlags, mun Landsbankinn jafnframt greiða upp eftirstöðvar 2018 gjalddaga veðtryggðra skuldabréfa bankans í erlendum gjaldmiðlum, samtals að jafnvirði um 22 milljarðar króna. LBI hf. mun frá sama tíma ávaxta sömu fjárhæð í erlendum gjaldmiðlum með bundnum innlánum til október 2018 hjá Landsbankanum, á kjörum sem samsvara 1,50% álagi ofan á millibankavexti,“ segir í tilkynningu frá Landsbankanum.
Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans, segir í tilkynningu að útgáfan breikki fjármögnun og styrki Landsbankann. „Útgáfan í dag er ánægjulegur áfangi og afar mikilvæg fyrir Landsbankann enda breikkar hún og styrkir verulega fjármögnun bankans í erlendri mynt. Aðgangur Landsbankans að erlendum fjármagnsmörkuðum byggir m.a. á sterkri fjárhagsstöðu bankans sem endurspeglast í því að í sumar hækkaði alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor’s lánshæfiseinkunn Landsbankans í BBB-, og er einkunnin jafnframt með jákvæðum horfum.”