Landsbankinn taldi ekki rétt að selja hlut í Borgun í opnu ferli

Landsbankinn.4vef.jpg
Auglýsing

Stjórn­endur Lands­banka Íslands töldu ekki rétt að selja 31,2 pró­sent hlut í Borgun í opnu og gagn­sæju ferli, eins og reglur bank­ans gera ráð fyr­ir­. ­Bank­inn til­tekur eft­ir­tald­ar­ á­stæður fyrir því í til­kynn­ingu á vef­síðu bank­ans: „Einn helsti keppi­nautur Lands­bank­ans er meiri­hluta­eig­andi félags­ins og jafn­framt einn stærsti við­skipta­vinur þess, sem gerir Lands­bank­anum erfitt um vik, að vinna að sölu og afhend­ingu gagna um félag­ið. Lands­bank­inn hefur haft mjög tak­mark­aðan aðgang að Borgun eða upp­lýs­ingum um fyr­ir­tækið vegna sáttar sem gerð var við Sam­keppn­is­eft­ir­litið árið 2008. Því auð­veld­aði þátt­taka stjórn­enda í kaup­enda­hópnum mögu­legum kaup­endum að leggja mat á rekst­ur­inn og afla sér nauð­syn­legra upp­lýs­inga. Eðli máls­ins sam­kvæmt tóku samn­ingar mið af þess­ari stöðu aðila,“ segir til­kynn­ing­unni.

Ekk­ert er þó nákvæmar rakið í til­kynn­ing­unni, en það er tekið fram að Sam­keppn­is­eft­ir­litið hafi þrýst á um að gerðar yrðu breyt­ingar á eign­ar­hlut þeirra í Borg­un.

Eins og Kjarn­inn greindi frá í frétta­skýr­ingu í gær, keypti Eign­ar­halds­fé­lag Borg­unar slf. hlut­inn í Borgun eftir að Magnús Magn­ús­son, for­svars­maður félags­ins, hafði sett sig í sam­band við Lands­bank­ann og viðrað hug­myndir um kaup á hlutn­um. Þetta stað­festi Magnús í sam­tali við Kjarn­ann.

Auglýsing

Kaupin voru meðal ann­ars rædd á Alþingi í dag þar sem Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, furð­aði sig á aðferðum Lands­bank­ans við sölu á hlutnum og sagði þær ekki til fyr­ir­mynd­ar.

Kaupin fóru fram bak við luktar dyr, þar sem eng­inn annar en hóp­ur­inn sem sýndi áhuga á kaup­unum fékk að reyna að kaupa hlut­inn.

Stofnfé Eign­ar­halds­fé­lags Borg­unar nemur 500 þús­und krónum sem skipt­ist í þrjá flokka, 100 þús­und í A flokki, 395 þús­und í B flokki og fimm þús­und í C flokki. Í A og B flokki eru eig­endur stofn­fjár með tak­mark­aða ábyrgð en í C flokki er ótak­mörkuð ábyrgð.

B flokk­ur­inn langstærstur



Einu eig­endur A flokks stofn­fjár er félagið Orbis Borg­unar slf. Eig­endur B flokks hluta­bréfa Eign­ar­halds­fé­lags Borg­unar eru þrettán tals­ins, sam­kvæmt samn­ingi um sam­lags­fé­lagið sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um. Stærsti ein­staki eig­and­inn er Stál­skip ehf., þar sem Guð­rún Lár­us­dóttir hefur stýrt ferð­inni í ára­tugi, með 29,43 pró­sent hlut. Þá á félagið P126 ehf. 19,71 pró­sent hlut, en eig­endur þess eru Einar Sveins­son og sonur hans Bene­dikt Ein­ars­son, í gegnum móð­ur­fé­lagið Chara­m­ino Hold­ings Limited sem skráð er á Lúx­em­borg.

Þá á Pétur Stef­áns­son ehf. 19,71 pró­sent hlut, en for­svars­maður þess var Sig­valdi Stef­áns­son á stofn­fundi. Sam­an­lagður eign­ar­hlutur þess­ara þriggja stærstu eig­enda nemur 68,85 pró­sentum af B flokki stofn­fjár.

Á eftir þessum stærstu eig­endum kemur félagið Vetr­ar­gil ehf. með 5,14 pró­sent hlut og TD á Íslandi ehf. 5,15 pró­sent. Afgang­inn eiga AB 426 ehf (2,86%)., þar sem Sig­ur­þór Stef­áns­son er í for­svari, Egg­son ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta Geir­finns­dóttir er í for­svari, Bústoð ehf. (0,86%), þar sem Anna Birgitta er einnig í for­svari, Fram­tíð­ar­brautin ehf. (4,43%), þar sem B. Jak­obína Þrá­ins­dóttir er í for­svari, Iðu­steinar ehf., þar sem Magnús Pálmi Örn­ólfs­son er í for­svari, Holt og hæðir ehf., þar sem Sig­ríður V. Hall­dórs­dóttir er í for­svari, Spect­a­bilis ehf., þar sem Óskar V. Sig­urðs­son er í for­svari, og Mens Manus ehf., þar sem Hjalti Þ. Krist­jáns­son er í for­svari.

Stofn­fundur í októ­ber



Sam­kvæmt stofn­fund­ar­gerð félags­ins, frá 23. októ­ber síð­ast­liðn­um, voru fjórir ein­stak­lingar mættir fyrir hönd félag­anna Orbis Borg­unar slf. og Orbis GP ehf. Þau félög eru þau einu sem eru í eig­endur stofn­fjár í C flokki með ótak­mark­aða ábyrgð. Þau sem mættu á fund­inn fyrir hönd félag­anna voru Magnús Magn­ús­son, Óskar V. Sig­urðs­son, Jóhann Bald­urs­son og Mar­grét Gunn­ars­dótt­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None