Lántakendur borga 280 milljónum minna vegna mistaka við tilkynningu frá Arion banka

Alls 23 þúsund viðskiptavinir Arion banka með lán sem bera óverðtryggða breytilega vexti munu greiða einu prósentustigi lægri vexti en þeir hefðu annars gert frá 29. júlí til 25. september vegna mistaka við tilkynningu um vaxtahækkun.

Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19
Höfuðstöðvar Arion banka, Borgartúni 19
Auglýsing

Frestun Arion banka á vaxta­hækkun óverð­tryggðra neyt­enda­lána með breyti­legum vöxt­um, sem átti að taka gildi 29. júlí en mun nú ekki tala gildi fyrr en 25. sept­em­ber, lækkar vaxta­kostnað lán­tak­enda um 280 millj­ónir króna og snertir 23 þús­und ein­stak­linga. 

Þetta kemur fram í svari Arion banka við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­ið. 

Frest­unin nær fyrst og fremst til íbúða­lána, bíla­lána og lána sem bera kjör­vexti.

Fyrr í dag greindi bank­inn frá því að hann myndi fresta eins pró­sentu­stigs hækkun á óverð­tryggðum vöxtum sem hann til­kynnti um seint í júní, og áttu að taka gildi 29. júlí, til 25. sept­em­ber. Ástæðan er sú að það mis­fórst að til­kynna við­skipta­vinum um breyt­ing­una með beinum hætti. „Því mun bank­inn fresta vaxta­hækk­un­inni og end­ur­greiða ofgreidda vexti en ofgreiddir vextir ná aðeins til þriggja síð­ustu daga júlí­mán­að­ar.“

Auglýsing
Í svari Arion banka segir að það sé ekki há upp­hæð sem verði end­ur­greidd, enda sé ein­ungis um greiðslu til við­skipta­vina sem ofgreiddu þrjá síð­ustu dag­ana í júlí. „Hins vegar greiða þeir sem eru með lán hjá Arion banka sem bera óverð­tryggða breyti­lega vexti einu pró­sentu­stigi lægri vexti en þeir hefðu ann­ars gert frá 29. júlí til 25. sept­em­ber. Það nemur um 280 millj­ónum króna og snertir 23 þús­und ein­stak­linga.“

Hinir stóru bank­arnir hafa þegar hækkað vexti

Arion banki er sá eini af stóru bönk­unum þremur sem hefur ekki til­kynnt um vaxta­hækkun á neyt­enda­lánum eftir síð­ustu stýri­vaxta­hækkun Seðla­banka Íslands í síð­ustu viku, þegar þeir voru hækk­aðir um 0,75 pró­­sent­u­­stig upp í 5,5 pró­­sent.

Kjarn­inn greindi frá því fyrr í dag að Lands­­bank­inn og Íslands­­­banki hafa báðir hækkað vexti af óverð­­tryggðum íbúða­lán­um. Breyt­i­­legir vextir á óverð­­tryggðum grunn­lánum til íbúð­­ar­­kaupa (allt að 70 pró­­sent af kaup­verði) hjá Lands­­bank­an­um, sem er nán­­ast að öllu leyti í eigu íslenska rík­­is­ins, hækka til jafns við stýri­­vaxta­hækk­­un­ina og verða sjö pró­­sent. Þurfi fólk hærra hlut­­fall að láni eru vext­irnir enn hærri.

Íslands­­­banki hækkar söm­u­­leiðis breyt­i­­lega óverð­­tryggða vexti af grunn­lánum um 0,75 pró­­sent­u­­stig.

Í til­kynn­ingu Arion banka sem birt var í dag vegna áður­nefndrar frest­unar á gild­is­töku vaxta­hækk­unar segir þó að „Í kjöl­far ákvörð­unar Seðla­banka Íslands frá 24. ágúst sl. um að hækka stýri­vexti um 0,75 pró­sentu­stig eru frek­ari breyt­ingar á vöxtum Arion banka til skoð­un­ar.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent