Lilja Dögg ráðin framkvæmdastjóri SagaMedica - Stórefld markaðssókn erlendis

Ab_1596-2.jpg
Auglýsing

Lilja Dögg Stef­áns­dótt­ir, sem áður starf­aði sem mark­aðs­stjóri Pfizer hjá Icepharma, hefur verið ráðin fram­kvæmda­stjóri Saga­Med­ica og hefur störf 1. nóv­em­ber næst­kom­andi. Lilja tekur við starf­inu af Perlu Björk Egils­dóttur sem hefur leitt starf félags­ins frá árinu 2013.

Lilja segir í til­kynn­ingu að nýtt starf sé mikil áskorun enda sé alþjóð­legur mark­aður fyrir nátt­úru­lyf og aðrar nátt­úru­vörur í örum vexti og að félagið muni nú leggja aukna áherslu á mark­aðs­setn­ingu erlendis þar sem vörur félags­ins hafi nú þegar náð góðri fót­festu á mörk­uðum inn­an­lands. „Saga­Med­ica hefur frá stofnun verið er leið­andi fyr­ir­tæki í íslenskum nátt­úru­vöru­iðn­aði en sér­staða félags­ins felst einkum í nýt­ingu íslensku hvann­ar­innar í fram­leiðslu sinni. Saga­Pro og Voxis eru þær vörur sem hafa náð bestri fót­festu á íslenskum mark­aði auk þess sem farið hefur verið af stað með mark­að­setn­ingu á vörum félags­ins á erlendum mörk­uð­u­m,“ segir í til­kynn­ingu frá félag­inu.

Nú stendur til að stór­auka áherslu á mark­aðs­setn­ingu erlendis og í því sam­bandi eru gerðar breyt­ingar á skipu­lagi félags­ins. Þórður Magn­ús­son, stjórn­ar­for­maður Saga­Med­ica, segir að á und­an­förnum árum hafi áherslan fyrst og fremst verið á að efla tækni­lega hæfni fyr­ir­tæk­is­ins, vöru­þróun og stað­setn­ingu vör­unnar á mark­aði.

Auglýsing

Nú séu kafla­skil í sögu fyr­ir­tæk­is­ins þar sem aukin áhersla verður á vöxt og upp­bygg­ingu dreifi­leiða auk sölu og mark­aðs­setn­ingar erlend­is. „Saga­Med­ica hefur náð góðum árangri í vöru­þróun og fyrir liggur að vörur fyr­ir­tæk­is­ins geta bætt lífs­gæði millj­óna manna um allan heim. Það liggur fyrir að við ætlum okkur stóra hluti og mikla upp­bygg­ingu fyr­ir­tæk­is­ins,“ segir Þórð­ur.

Lilja Dögg hefur und­an­farin tvö ár verið mark­aðs­stjóri lyfja­fyr­ir­tæk­is­ins Pfizer á Íslandi. Áður starf­aði Lilja hjá Act­a­vis í tæp ell­efu ár og var síð­ast búsett í Sviss þar hún starf­aði sem for­stöðu­maður sölu- og mark­aðs­sviðs með ábyrgð á Mið-Aust­ur­lönd­um, Afr­íku og Asíu. Þá hefur Lilja einnig gegnt stöðu sölu- og mark­aðs­stjóra Act­a­vis á Íslandi. „Ég hlakka til að takast á við nýjar áskor­anir hjá Saga­Med­ica og að fá tæki­færi til að fylgja eftir þeirri nýsköp­un­ar­vinnu sem þar hefur verið unn­in. Saga­Med­ica er áhuga­vert og spenn­andi fyr­ir­tæki sem er frum­kvöð­ull á sviði rann­sókna, þró­unar og fram­leiðslu nátt­úru­vara úr íslenskum jurt­um. Saga­Pro, ein vin­sælasta vara Saga­Med­ica, er til að mynda fyrsta íslenska nátt­úru­varan sem geng­ist hefur undir klíníska rann­sókn,“ segir Lilja Dögg.

Perla Björk Egils­dótt­ir, núver­andi fram­kvæmda­stjóri hefur verið hjá félag­inu frá 2008, fyrst sem mark­aðs­stjóri og frá 2013 sem fram­kvæmda­stjóri. Hún gegndi leið­andi hlut­verki í tengslum við klíníska rann­sókn á Saga­Pro. „Við þökkum Perlu inni­lega fyrir sam­starfið á liðnum árum. Undir hennar stjórn hefur fyr­ir­tækið tekið stakka­skiptum og fyrstu skref hafa verið stigin á mik­il­vægum mörk­uðum eins og í Banda­ríkj­un­um, Kana­da, Sví­þjóð og Finn­land­i,“ segir Þórð­ur.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None