Liz Truss segir af sér sem forsætisráðherra Bretlands

Forsætisráðherra Bretlands hefur sagt af sér embætti eftir aðeins sex vikur í embætti. Enginn forsætisráðherra hefur setið skemur á forsætisráðherrastóli í sögu Bretlands.

Liz Truss hefur sagt af sér sem forsætisráðherra Bretlands. Aðeins eru um sex vikur síðan hún tók við embætti.
Liz Truss hefur sagt af sér sem forsætisráðherra Bretlands. Aðeins eru um sex vikur síðan hún tók við embætti.
Auglýsing

Liz Truss hefur sagt af sér emb­ætti sem for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands og sem for­maður Íhalds­flokks­ins.

Truss greindi frá afsögn sinni á blaða­manna­fundi fyrir utan Down­ingstræti 10 rétt eftir hádegi. Í yfir­lýs­ingu sinni sagð­ist hún ekki hafa getað starfað eftir því umboði sem flokks­menn Íhalds­flokks­ins veittu henni í haust. Hún hefur til­kynnt Karli þriðja kon­ungi um afsögn sína.

Dag­arnir 45 sem Truss hefur verið í emb­ætti hafa verið storma­sam­ir. Umdeildar efna­hags­að­gerð­ir, kynntar af Kwasi Kwar­teng fjár­mála­ráð­herra, sem fólust í skatta­lækk­unum sem fjár­magna átti með lánum féllu í grýttan jarð­veg, bæði hjá almenn­ingi og mark­aðn­um, og svo fór að Kwar­teng var lát­inn víkja og Jer­emy Hunt, fyrr­ver­andi heil­birgð­is- og utan­rík­isáð­herra, tók við sem fjár­mála­ráð­herra.

Ekki úti­lokað að Boris John­son snúi aftur

Boðað verður til atkvæða­greiðslu um kjör nýs for­manns Íhalds­flokks­ins innan viku og mun Truss starfa áfram sem for­sæt­is­ráð­herra þangað til. Hunt hefur þegar greint frá því að hann ætli ekki að sækj­ast eftir því verða næsti leið­togi Íhalds­flokks­ins og þar með for­sæt­is­ráð­herra.

Auglýsing
Graham Brady, for­maður 1922-­nefndar Íhalds­flokks­ins, sem sér um helstu for­yst­u­­­­­mál Íhalds­­­­­­­­­flokks­ins, segir í sam­tali við BBC að búast megi við að ljóst verði hver muni taka við af Truss sem leið­togi Íhalds­flokks­ins á föstu­dag­inn í næstu viku.

For­veri Truss í emb­ætti, Boris John­son, sem sagði af sér í sumar eftir röð hneyksl­is­mála, gæti sóst eftir því að snúa aftur sem leið­togi Íhalds­flokks­ins. Bæði Times og Daily Tel­egraph segj­ast hafa heim­ildir fyrir því að John­son sýni því áhuga. Times segir að John­son telji það, að hann snúi aftur sem for­sæt­is­ráð­herra, snú­ast um hags­muni þjóð­ar­inn­ar. Ekki liggur fyrir hvernig leið­toga­kjör­inu verður nákvæm­lega hátt­að. Þá gæti það skipt máli að John­son sætir enn rann­sóknar vegna Par­tyga­te-hneyksl­is­ins svo­kall­aða. Rann­­sókn­­ar­­nefnd á vegum breska þings­ins rann­sakar enn hvort John­­­son hafi vís­vit­andi afvega­­­leitt þing­­­menn í umræðum um sam­­­kvæmi sem haflin voru á tímum strangra sótt­­­varna­reglna.

Var stað­ráðin í að gef­ast ekki upp

Truss er þriðja konan sem gegnir emb­ætti for­­sæt­is­ráð­herra í sögu Bret­lands. Hún hafði betur gegn Rishi Sunak í leið­­toga­­kjöri flokks­ins í sept­em­ber. Í þakk­ar­ræðu sinni sem hún flutti þegar hún náði kjöri sagði hún það mik­inn heiður að vera kjör­inn leið­­togi Íhalds­­­flokks­ins.

Átta sótt­­ust eftir að leiða flokk­inn eftir að Boris John­­son sagði af sér í byrjun júlí. Eftir nokkrar lotur atkvæða­greiðsla stóð valið á milli Truss og Sunak. Fyr­ir­fram var búist við sigri Truss, sem þótti þó ekki lík­­­legur sig­­ur­­veg­­ari þegar kosn­­inga­bar­áttan hófst í sum­ar. Sunak þykir lík­legur til að sækj­ast eftir því að leiða flokk­inn nú þegar Truss hefur sagt af sér.

Elísa­bet Eng­lands­drott­ing skip­aði Truss í emb­ætti 6. sept­em­ber og var það meðal hennar síð­ustu opin­beru emb­ætt­is­verka áður en hún féll frá tveimur dögum seinna. Ljóst var að Truss átti vanda­­samt hlut­verk fyrir höndum og héldu stjórn­­­mála­­skýrendur því fram að nýr for­­sæt­is­ráð­herra hafi ekki tekið við á jafn erf­iðum tímum síðan Marg­­aret Thatcher varð for­­sæt­is­ráð­herra árið 1979.

Í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á breska þing­inu í gær sagð­ist Truss ætla að halda ótrauð áfram þrátt fyrir þá miklu gagn­rýni sem hún hefur sætt. „Ég er bar­áttu­kona og ég gefst ekki upp. Allt sem ég hef gert er með það að leið­ar­ljósi að styrkja efna­hags­líf­ið,“ sagði Truss. Í dag var hljóðið ann­að, þegar Truss, til­kynnti afsögn sína.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent