Lögregla væntir þess að Hvalur hf. skili dróna svissneska ríkisútvarpsins í dag

Teymi frá svissneska ríkisfjölmiðlafyrirtækinu SRG SSR flaug dróna yfir hvalstöð Hvals hf. fyrr í vikunni. Starfsmenn Hvals hf. hirtu af þeim drónann og lögreglan á Akranesi hefur krafið fyrirtækið um að skila dróna Svisslendinganna.

Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. virðir hér fyrir sér dauðan hval í Hvalfirði í júlímánuði.
Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. virðir hér fyrir sér dauðan hval í Hvalfirði í júlímánuði.
Auglýsing

Lög­reglan á Akra­nesi býst við því að fá í dag afhentan dróna, sem starfs­menn Hvals hf. tóku af kvik­mynda­teymi á vegum sviss­neska rík­is­út­varps­ins í vik­unni.

„Það var klár­lega tek­inn dróni þarna sem við höfum fram á að verði komið hér til okkar á Akra­nes,“ segir Ásmundur Krist­inn Ásmunds­son hjá lög­regl­unni á Akra­nesi í sam­tali við Kjarn­ann.

Í Morg­un­blað­inu í dag var fjallað um þetta mál, frá sjón­ar­horni Krist­jáns Lofts­sonar eig­anda Hvals hf., sem hefur lagt fram kæru á hendur sviss­neska teym­inu fyrir að hafa flogið drón­anum of nálægt athafna­svæði fyr­ir­tæk­is­ins í Hval­firði, eða í um 20 metra hæð yfir svæð­inu sam­kvæmt því sem haft er eftir Krist­jáni í Morg­un­blað­inu. Vísar hann til mynd­banda sem hann hafi séð af flugi drón­ans, máli sínu til stuðn­ings.

Ásmundur hjá lög­regl­unni stað­festi við Kjarn­ann í morgun að flug drón­ans hafi verið kært til lög­reglu, en sagð­ist ekki viss um að form­leg kæra vegna þjófn­aðar á dróna hafi borist frá sviss­neska teym­inu, þó að þaðan hafi borist til­kynn­ing til lög­reglu um að drón­inn hafi verið hirt­ur, sem lög­regla hefur gengið á eft­ir. Málið er til skoð­unar hjá emb­ætt­inu.

Sann­ar­lega á vegum sviss­neska rík­is­fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins

Kjarn­inn ræddi við einn úr sviss­neska teym­inu í gær af öðru til­efni og fékk þar hina hlið dróna­máls­ins, í óspurðum frétt­um. Sam­kvæmt lýs­ingum sviss­neska dag­skrár­gerð­ar­manns­ins gekk hópur starfs­manna Hvals hf. nokkuð hart fram gegn kvik­mynda­tökuteym­inu, svo að nán­ast lá við handa­lög­mál­um, en starfs­menn­irnir voru ósáttir við mynda­töku­að­ferðir teym­is­ins, komu út úr hval­stöð­inni og hirtu drón­ann.

Auglýsing

Mögu­legt er að þessi röð atvika verði sýnd í sviss­nesku sjón­varpi ein­hvern­tím­ann á næst­unni, en sviss­neska teymið er statt hér á landi til þess að vinna umfjöllun um hval­veiðar Íslend­inga, sam­kvæmt upp­lýs­ingum sem Kjarn­inn fékk frá þeim í gær.

Í Morg­un­blað­inu í dag segir að sviss­neska teymið sé ekki á vegum sviss­neska rík­is­út­varps­ins, heldur frá einka­rek­inni vef­síðu þar í landi. Þetta er hins vegar rangt.

Sviss­neska teymið seg­ist vera á vegum SRG SSR, sem er sann­ar­lega sviss­neska rík­is­fjöl­miðla­fyr­ir­tækið. Þýskt heiti þess er Schweiz­er­ische Radio- und Fern­seh­ges­ellschaft og hið franska er Société suisse de radi­odiffusion et télé­vision.

Lík­lega að brjóta reglur um dróna­flug

Ásmundur hjá lög­regl­unni á Akra­nesi segir aðspurður að ef lýs­ingar starfs­manna Hvals hf. á dróna­flugi Sviss­lend­ing­anna séu réttar hafi teymið, sem Krist­ján Lofts­son segir í Morg­un­blað­inu í dag að hafi minnt á „eitt­hvert Hollywood-­geng­i“, klár­lega verið að brjóta regl­ur.

Regl­urnar um dróna­flug yfir athafna­svæðum eru þær að það sé almennt bannað að fara nær bygg­ingum í og athafna­svæðum í strjál­býli en 150 metra, nema með leyfi umráð­anda, sem Sviss­lend­ing­arnir hafa án efa ekki fengið hjá Krist­jáni Lofts­syni for­svars­manni Hvals hf.

Vilja skila Sviss­lend­ing­unum drón­anum

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans verður sviss­neska teymið á land­inu fram á sunnu­dag og var á dag­skrár­gerð­ar­manni þess að skilja að þeir hefðu vænt­ingar um að geta tekið drón­ann með sér heim.

Ásmundur hjá lög­regl­unni segir að málið sé til rann­sókn­ar, og meðal ann­ars þurfi að skoða hvernig drón­inn lá er hann var tek­inn, hvort hann var tek­inn út úr bíl eða hvort hann lá á víða­vangi. Á honum er að helst heyra að lög­reglan stefni að því að koma drón­anum til rétt­mæts eig­anda, sviss­neska rík­is­út­varps­ins, þegar starfs­menn Hvals skila honum af sér.

„Þetta eru dýr tæki,“ segir Ásmund­ur, sem hefur sem áður segir vænt­ingar um að drón­anum verði skilað í dag.

Krist­ján Lofts­son sagði hins vegar við Morg­un­blaðið að drón­inn yrði ekki afhentur fyrr en fyr­ir­tækið gæti treyst því að lög­regla rann­sak­aði málið ofan í kjöl­inn.

Ef Hvalur hf. skilar ekki drón­anum þyrfti lög­regla að fá dóms­úr­skurð til þess að fá að fara inn á athafna­svæði fyr­ir­tæk­is­ins og sækja drón­ann.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent