Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, hefur sent út bréf til allra viðbragðsaðila sem tengjast þjóðhátíð í Eyjum og brýnt fyrir þeim að upplýsa fjölmiðla ekki um kynferðisbrot sem upp koma á þjóðhátíð um helgina. Vísir greinir frá þessu og birtir bréfið sem Páley sendi.
„Ég legg því til að allir viðbragðsaðilar, allir gæslumenn, starfsmenn neyðarmóttöku, heilbrigðisstarfsmenn, sjúkraflutningsmenn og allir þeir sem koma að þessum brotum og fá upplýsingar starfa sinna vegna gefi engar upplýsingar um þessi mál. Með engum upplýsingum á ég við að hvorki verði gefið upp hvort að það hafi komið upp brot eða ekki. Besta svarið hvað ykkur varðar er „Við höfum enga heimild til að veita slíkar upplýsingar“,“ skrifar Páley.
Hún segir að þessir aðilar geti vísað á lögreglu ef þeir eru spurðir, en segir svo jafnframt í bréfinu að hún hafi tekið ákvörðun í samráði við áfallateymi þjóðhátíðar og félagsþjónustu Vestmannaeyjabæjar að lögreglan muni ekki veita fjölmiðlum upplýsingar um kynferðisbrot um helgina.
Í bréfinu segir líka að fjölmiðlar vilji helst fjalla um kynferðisbrot. Það sé afar þungbært fyrir „aðila kynferðisbrots“ að mál þeirra séu í fjölmiðlum á sama tíma og verið sé að takast á við brot, byrja kæruferli og slíkt. „Eins og ítrekað hefur komið fram í umræðunni eykur það vanlíðan aðila og fjölskyldna þeirra að mál þeirra, jafn viðkvæm og þau eru, komi til opinberrar umræðu.“