Samtök ferðaþjónustunnar lýsa vonbrigðum með að færa eigi vatnasvæði Héraðsvatna og þar með jökulsárnar í Skagafirði úr verndarflokki í biðflokk rammaáætlunar samkvæmt breytingartillögu meirihluta umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis. Til stendur að greiða atkvæði um breytingartillöguna, sem og nokkrar breytingartillögur minnihluta nefndarinnar, á morgun.
„Jökulsárnar í Skagafirði eru gríðarlega mikilvægar fyrir ferðaþjónustu í Skagafirði og eru flúðasiglingar ein helsta undirstaða ferðaþjónustu á svæðinu,“ segir í yfirlýsingu samtakanna.
Þá lýsa þau einnig yfir miklum vonbrigðum með afstöðu meirihluta nefndarinnar varðandi áhrif vindorkukostsins Búrfellslundar. „Meirihlutinn virðist ekki byggja afstöðu sína um lítil áhrif á ferðaþjónustu á neinu sérstöku nema tilfinningu. Samtökin telja varhugavert að setja Búrfellslund í nýtingarflokk.“ Verkefnisstjórn rammaáætlunar raðaði honum í biðflokk því hún taldi frekari gögn vanta til að taka afstöðu til þess hvort hann ætti heima í verndar- eða orkunýtingarflokki.
Samtök ferðaþjónustunnar skora á stjórnvöld að gera ferðaþjónustunni hærra undir höfði við hagsmunamat þegar ákveðið er hvenær og hvar eigi að virkja. Einnig vilja samtökin minna á að ferli áætlunar um vernd og orkunýtingu landsvæða sé virkt og að sátt ríki um framtíðarfyrirkomulag orkuvinnslu hér á landi.b
Því er hins vegar fagnað að meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar hafi lagt til að Skrokkölduvirkjun verði tekin úr nýtingarflokki og sett í bið. „Það hefði þó verið betra ef þessi virkjunarkostur hefði verið settur í verndarflokk enda við jaðar stærsta þjóðgarðs Evrópu. Einnig fagna samtökin þeirri breytingu að draga virkjunarkosti úr biðflokki og fella þá úr áætluninni.“
Samtökin hvetja jafnframt umhverfisráðherra til að friðlýsa Torfajökulssvæðið, Grashaga og Sandfell enda liggi svæðin í nágrenni við vinsælustu og mest sóttu gönguleið landsins, Laugaveginn.