Lýsa vonbrigðum með að jökulsárnar í Skagafirði séu teknar úr verndarflokki

Samtök ferðaþjónustunnar skora á stjórnvöld að gera ferðaþjónustunni hærra undir höfði við hagsmunamat þegar ákveðið er hvenær og hvar eigi að virkja.

Flúðasiglingar í jökulsánum í SKagafirði eru undirstaða ferðaþjónustu á svæðinu.
Flúðasiglingar í jökulsánum í SKagafirði eru undirstaða ferðaþjónustu á svæðinu.
Auglýsing

Sam­tök ferða­þjón­ust­unnar lýsa von­brigðum með að færa eigi vatna­svæði Hér­aðs­vatna og þar með jök­ulsárnar í Skaga­firði úr vernd­ar­flokki í bið­flokk ramma­á­ætl­unar sam­kvæmt breyt­ing­ar­til­lögu meiri­hluta umhverf­is- og sam­göngu­nefndar Alþing­is. Til stendur að greiða atkvæði um breyt­ing­ar­til­lög­una, sem og nokkrar breyt­ing­ar­til­lögur minni­hluta nefnd­ar­inn­ar, á morg­un.

„Jök­ulsárnar í Skaga­firði eru gríð­ar­lega mik­il­vægar fyrir ferða­þjón­ustu í Skaga­firði og eru flúða­sigl­ingar ein helsta und­ir­staða ferða­þjón­ustu á svæð­in­u,“ segir í yfir­lýs­ingu sam­tak­anna.

Þá lýsa þau einnig yfir miklum von­brigðum með afstöðu meiri­hluta nefnd­ar­innar varð­andi áhrif vind­orku­kosts­ins Búr­fellslund­ar. „Meiri­hlut­inn virð­ist ekki byggja afstöðu sína um lítil áhrif á ferða­þjón­ustu á neinu sér­stöku nema til­finn­ingu. Sam­tökin telja var­huga­vert að setja Búr­fellslund í nýt­ing­ar­flokk.“ Verk­efn­is­stjórn ramma­á­ætl­unar rað­aði honum í bið­flokk því hún taldi frek­ari gögn vanta til að taka afstöðu til þess hvort hann ætti heima í vernd­ar- eða orku­nýt­ing­ar­flokki.

Auglýsing

Sam­tök ferða­þjón­ust­unnar skora á stjórn­völd að gera ferða­þjón­ust­unni hærra undir höfði við hags­muna­mat þegar ákveðið er hvenær og hvar eigi að virkja. Einnig vilja sam­tökin minna á að ferli áætl­unar um vernd og orku­nýt­ingu land­svæða sé virkt og að sátt ríki um fram­tíð­ar­fyr­ir­komu­lag orku­vinnslu hér á land­i.b

Því er hins vegar fagnað að meiri­hluti umhverf­is- og sam­göngu­nefndar hafi lagt til að Skrokköldu­virkjun verði tekin úr nýt­ing­ar­flokki og sett í bið. „Það hefði þó verið betra ef þessi virkj­un­ar­kostur hefði verið settur í vernd­ar­flokk enda við jaðar stærsta þjóð­garðs Evr­ópu. Einnig fagna sam­tökin þeirri breyt­ingu að draga virkj­un­ar­kosti úr bið­flokki og fella þá úr áætl­un­inn­i.“

Sam­tökin hvetja jafn­framt umhverf­is­ráð­herra til að frið­lýsa Torfa­jök­uls­svæð­ið, Gras­haga og Sand­fell enda liggi svæðin í nágrenni við vin­sæl­ustu og mest sóttu göngu­leið lands­ins, Lauga­veg­inn.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent