Meðalmaðurinn fengi 15 þúsund krónur við 3,5 prósenta hækkun

medal-jon.jpg
Auglýsing

Hækki ráð­stöf­un­ar­tekjur um 3,5 pró­sent í kom­andi kjara­við­ræðum myndi það þýða um 79.400 króna hækkun á árs­grund­velli hjá launa­manni sem til­heyrir lægsta tekju­fjórð­ungi. Það eru um 6.600 krónur á mán­uð­i. ­Fyrir ein­stak­ling í efsta tekju­fjórð­ungi myndi sama pró­sentu­hækkun skila 337.400 króna hækkun ráð­stöf­un­ar­tekna, eða um 28 þús­und króna hækkun á núver­andi mán­að­ar­tekj­um. Að með­al­tali myndi 3,5 pró­senta hækku á ráð­stöf­un­ar­tekj­um* skila rúm­lega 15 þús­und krónum til launa­manns á mán­uði.

Útreikn­ing­arnir mið­ast við með­al­tals ráð­stöf­un­ar­tekjur Meniga-heim­ila á síð­asta ári. Greint var frá því á vef Kjarn­ans í gær að ráð­stöf­un­ar­tekjur heim­ila hækk­uðu um 6,55% á árinu 2014 og eru að jafn­aði 442 þús­und krónur á mán­uði. Úrtakið nær til ríf­lega þrettán þús­und not­enda Meniga.

Auglýsing
Tekju­fjórð­ungur - Hópur (upp­hæðir eru í krón­um)
Árs­hækk­anir 1 2 3 4 Með­al­tal
Hvers virði er pró­sentið 22.698 38.654 54.542 96.424 53.082
Hvers virði er 3,5% 79.442 135.290 190.897 337.484 185.786
Hvers virði er 3,5% jafnt skipt 185.786 185.786 185.786 185.786 185.786
Hver yrði sú hækkun 8,2% 4,8% 3,4% 1,9% 3,5%

 

 

































































































 Mán­að­ar­hækk­anir Tekju­fjórð­ungur - Hópur (upp­hæðir eru í krón­um)
Mán­að­ar­hækkun 1 2 3 4 Með­al­tal
Hvers virði er pró­sent­ið? 1.891 3.221 4.545 8.035 4.423
Hvers virði er 3,5% 6.620 11.274 15.908 28.124 15.482
Hvers virði er 3,5% jafnt skipt 15.482 15.482 15.482 15.482 15.482
Hver á hækk­unin að vera 8,2% 4,8% 3,4% 1,9% 3,5%


Töfl­urnar hér að ofan sýna hvaða þýð­ingu eitt pró­senta hækkun ann­ars vegar og 3,5 pró­senta hækkun hins vegar á ráð­stöf­un­ar­tekjum hafa í krónum talið fyrir launa­mann að með­al­tali, skipt eftir því hvaða tekju­fjórð­ungi hann til­heyr­ir. Hópur eitt er tekju­lægstur og hópur fjögur sá tekju­hæsti.



Ef 3,5 pró­senta launa­hækkun væri jafn skipt í krónum talið myndi það hafa í för með sér 186 þús­und króna hækkun árs­launa. Það sam­svarar 8,2 pró­senta hækkun ráð­stöf­un­ar­tekna þeirra sem til­heyra lægsta tekju­fjórð­ungi, 4,8 pró­senta hækkun hjá næst lægsta tekju­fjórð­ungi, 3,4 pró­senta hækkun hjá þeim næst efsta og 1,9 pró­senta hækkun hjá efsta tekju­fjórð­ungi.

Segja þetta vera svig­rúmið

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og Seðla­banki Íslands hafa talað fyrir svig­rúmi til launa­hækk­ana sem nemur þremur til fjórum pró­sent­um. Kröfur ýmissa stétt­ar­fé­laga hafa verið mun hærri og allt að 20 pró­sent, einkum á lægstu laun.



*Með ráð­stöf­un­ar­tekjum er átt við heild­ar­tekjur eftir skatta, með­lag, bætur (þ.m.t. barna­bæt­ur, atvinnu­leys­is­bæt­ur, húsa­leigu­bætur og vaxta­bæt­ur), styrki, líf­eyr­is­greiðslur og náms­lán. Hér er því ekki miðað við hækk­un launa held­ur ráð­stöf­un­ar­tekna.



ferd-til-fjar_bordi

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None