Meintur nafnlaus kosningaáróður reyndist hafa ábyrgðarmann

Áhöld voru um hvort auglýsingar frá Betri borg sem birtar voru í Morgunblaðinu og Fréttablaðinu í morgun væru nafnlaus kosningaáróður. Í ljós kom að nafn ábyrgðarmanns var rtiað með svo smáu letri að starfsfólk stjórnmálaflokka tók ekki eftir því.

Auglýsingar frá Betri borg voru birtar í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í morgun.
Auglýsingar frá Betri borg voru birtar í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í morgun.
Auglýsing

Starfs­fólk stjórn­mála­flokka sem bjóða fram í Reykja­vík ræddu það í dag hvort til­efni væri til að bregð­ast við aug­lýs­ingum sem voru birtar í Frétta­blað­inu og Morg­un­blað­inu í morg­un. Áhöld voru um hvort þar væru á ferð­inni nafn­lausar aug­lýs­ingar en slíkar aug­lýs­ingar brjóta í bága við lög. Aug­lýs­ing­arnar voru birtar undir merkjum Betri borg­ar, en við­mæl­endur Kjarn­ans vissu engin deili á Betri borg.

Þetta er ein þeirra auglýsinga sem Betri borg birti í blöðunum í morgun. Mynd: Skjáskot/Fréttablaðið

Við upp­haf árs árið 2019 tóku gildi lög sem ætlað var að sporna gegn nafn­lausum kosn­inga­á­róðri sem nokkuð hafði borið á í kosn­ingum árin á und­an. Þar er kveðið á um að aug­lýs­ingar skuli vera merktar aug­lýsanda eða ábyrgð­ar­manni.

Þegar betur var að gáð kom í ljós að nafn ábyrgð­ar­manns var ritað með agn­arsmáu letri í hægra horn aug­lýs­ing­ar­innar og raunar svo smáu að erfitt er að lesa text­ann í prentút­gáfum blað­anna. Í aug­lýs­ing­unum sem um ræðir er kallað eftir minni spill­ingu, betri borg og að meiri­hlut­inn verði kos­inn í burtu.

Svona lítur auglýsing út þegar hún hefur verið stækkuð umtalsvert. Eins og sést á myndinni vinstra megin er letrið smáa allt að því ólæsilegt í prentútgáfum blaðanna. Mynd: Kjarninn

Ábyrgð­ar­maður aug­lýs­ing­anna er Hilmar Páll Jóhann­es­son. Hann hefur átt í deilum við borg­ar­yf­ir­völd í þónokkurn tíma vegna hæð­ar­kóta á lóð sem Loft­kastal­inn ehf á í Gufu­nesi en Hilmar á fyr­ir­tækið ásamt konu sinni, Ingu Lóu Guð­jóns­dótt­ur. Deilur Loft­kast­al­ans og Reykja­vík­ur­borgar hafa staðið yfir í um þrjú ár. Í vik­unni kærði Inga Lóa borg­ar­stjóra, Dag B. Egg­erts­son, fyrir meint brot brot á sveita­­stjórn­­­ar­lög­um, stjórn­­­sýslu­lög­um, hegn­ing­­ar­lög­um og upp­­lýs­inga­lög­­um. Hún kærði einnig emb­ætt­is­­menn­ina Björn Ax­els­­son og Harra Orm­ar­s­­son.

Auglýsing

Eftir að í ljós kom að aug­lýs­ingin væri merkt ábyrgð­ar­manni, var tekin sú ákvörðun hjá því starfs­fólki stjórn­mála­flokka sem Kjarn­inn hefur rætt við að aðhaf­ast ekk­ert, enda ekk­ert ólög­legt á ferð í aug­lýs­ingum Betri borg­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent