Meirihluti landsmanna andvígur kvótakerfinu

Rúm 60 prósent landsmanna segjast í nýrri könnun vera frekar eða mjög andvíg núverandi kvótakerfi í sjávarútvegi. „Fólki misbýður sérhagsmunagæslan,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar og fyrrverandi sjávarútvegsráðherra.

Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins greiddu sér 21,5 millj­arða króna í arð árið 2020.
Sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki lands­ins greiddu sér 21,5 millj­arða króna í arð árið 2020.
Auglýsing

Rúm­lega 60 pró­sent lands­manna eru and­víg núver­andi kvóta­kerfi í sjáv­ar­út­vegi, sam­kvæmt nið­ur­stöðum skoð­ana­könn­unar Pró­sents sem birt er í Frétta­blað­inu í dag. Tutt­ugu pró­sent þeirra sem tóku afstöðu í könn­un­inni seg­ist vera mjög eða frekar hlynnt kerf­inu en 61 pró­sent frekar eða mjög and­víg því.

Konur eru tölu­vert and­víg­ari kerf­inu en karlar og íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins eru einnig and­víg­ari því en íbúar á lands­byggð­inni.

Mestur stuðn­ingur við kerfið er hjá þeim sem eru 65 ára eða eldri og þeim tekju­hæstu. And­staðan við kvóta­kerfið er mest í ald­urs­hópnum 35 til 44 ára. 71 pró­sent fólks á þeim aldri er and­vígt kerf­inu en þrettán pró­sent styðja það.

Auglýsing

Hagur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja lands­ins, sam­tala arð­greiðslna og auk­ins eigin fjár þeirra, hefur vænkast um meira en 500 millj­arða króna frá banka­hruni. Geir­inn greiddi sér meira út í arð árið 2020 en hann greiddi í öll opin­ber gjöld. Í frétta­skýr­ingu Kjarn­ans um málið sem birt var í sept­em­ber á síð­asta ári kom m.a. fram að heild­ararð­greiðslur út úr sjáv­ar­út­vegi frá byrjun árs 2016 og út árið 2020 námu 70,5 millj­örðum króna. Á sama tíma­bili hefði geir­inn greitt 35,9 millj­arða króna í veiði­gjöld, eða rétt rúm­lega 50 pró­sent af þeirri upp­hæð sem eig­endur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja höfðu fengið í arð.

Haft er eftir Heiðrúnu Lind Mart­eins­dótt­ur, fram­kvæmda­stjóra Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi, í Frétta­blað­inu í dag að nið­ur­stöður könn­un­ar­innar komi henni ekki á óvart en að erfitt sé að draga skýrar álykt­anir af þeim enda kunni fólk að hafa margar og mis­jafnar skoð­anir á því hvernig megi breyta því kerfi sem er við lýði. „Mark­mið fisk­veiði­stjórn­un­ar­kerf­is­ins var að koma á sjálf­bærum veið­um. Of mörg skip voru að elt­ast við of fáa fiska. Þorsk­stofn­inn hrundi, afkoman var afleit og hið opin­bera þurfti ítrekað að veita fyr­ir­tækjum fjár­hags­legt lið­sinni. Verk­efnið var því að tryggja umhverf­is­lega, efna­hags­lega og sam­fé­lags­lega sjálf­bærn­i,“ segir hún við Frétta­blað­ið.

Mis­býður sér­hags­muna­gæslan

Mikil sam­þjöppun hefur orðið innan kvóta­kerf­is­ins á und­an­förnum árum sem leitt hefur til þess að eig­endur örfárra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja hafa efn­ast veru­lega, líkt og rakið var í frétta­skýr­ingu Kjarn­ans síð­asta haust. Ítök þeirra í ótengdum geirum hér­lendis hafa sam­hliða vaxið hratt.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, for­maður Við­reisnar og fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra, segir við Frétta­blaðið að órétt­læti sé helsta skýr­ingin á and­stöðu við kvóta­kerf­ið. „Fólki mis­býður sér­hags­muna­gæslan,“ segir hún. „Það er ein­fald­lega ekki rétt gefið og rík­is­stjórnin vill hafa þetta svona. Þegar upp er staðið er varð­staðan um sjáv­ar­út­veg­inn meg­in­á­stæða þess að rík­is­stjórnin ákvað að halda áfram sam­starf­inu. Til þess voru ref­irnir skorn­ir.“

Könn­unin var gerð á net­inu dag­ana 14. til 26. jan­ú­ar. Úrtakið var 2.300 ein­stak­lingar og svar­hlut­fall var 50 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent