Árið 2013 höfðu 45.400 manns á aldrinum 25-64 ára eingöngu lokið grunnmenntun, þ.e. styttra námi en framhaldsskólastigi, samkvæmt niðurstöðum úr Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands. Það eru 27,8% íbúa og en hlutfallið hefur farið lækkandi á undanförnum árum, og var það 34,4% árið 2003, segir í tilkynningu frá Hagstofunni vegna þessa. Menntunarstig þjóðarinnar hefur því hækkað nokkuð hratt.
Þegar litið er á fjöldatölur hefur íbúum með grunnmenntun fækkað um 3.800 frá árinu 2003 og um 1.700 frá árinu 2012. „Þá höfðu 36,1% íbúa mest lokið starfs- og framhaldsmenntun, þ.e. lokið námi á framhaldsskólastigi sem er a.m.k. tvö ár að lengd eða lokið námi á viðbótarstigi, eða 58.900 manns,“ segir tilkynningu Hagstofunnar.
Álíka margir, 58.700 manns, höfðu lokið háskólanámi; 36,0% íbúa á Íslandi á þessu aldursbili. Háskólamenntuðum hefur fjölgað um 19.400 frá árinu 2003, þegar þeir voru 27,5% íbúa.