Methagnaður hjá N1, Krónunni og ELKO

Smásölu- og orkufyrirtækin sem eru í eigu Festi skiluðu bestu rekstrarniðurstöðum sínum frá upphafi í fyrra. Á meðal ástæðna þess voru auknar tekjur frá N1 rafmagni.

Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi.
Eggert Þór Kristófersson, forstjóri Festi.
Auglýsing

Orku- og smá­sölu­fé­lagið Festi skil­aði tæp­lega fimm millj­arða króna hagn­aði í fyrra, sem er tvö­falt hærri upp­hæð en árið 2020.

Dótt­ur­fé­lög Festi – sem eru meðal ann­ars N1, Krónan og ELKO – skil­uðu öll bestu rekstr­ar­nið­ur­stöðum sínum frá upp­hafi á árinu, meðal ann­ars vegna mik­illa verð­hækk­ana. Þetta kemur fram í nýbirtu árs­upp­gjöri félags­ins og fjár­fest­inga­kynn­ingu vegna síð­asta árs­fjórð­ungs­upp­gjörs.

Tæpur hálfur millj­arður úr elds­neyti og raf­magni

Tekjur allra þriggja dótt­ur­fé­lag­anna juk­ust tölu­vert á árinu, en aukn­ingin var þó mest hjá N1, þar sem hún nam tæpum átta millj­örðum króna. í fjár­festa­kynn­ingu sem fylgdi síð­asta árs­fjórð­ungs­upp­gjöri segir að verð­hækkun elds­neytis hafi haft mikil áhrif, en auk þess hafi salan á elds­neyti auk­ist tölu­vert.

Auglýsing

Einnig jókst fram­legð af elds­neyt­is- og raf­magns­sölu um 456 millj­ónir króna á síð­asta árs­fjórð­ungi, en sam­kvæmt Festi er það rúm­lega helm­ings­aukn­ing á milli ára.

Í þessum tölum er sala N1 Raf­magns á raf­orku til heim­ila í gegnum þrauta­vara­leið stjórn­valda, en félagið hefur verið gagn­rýnt fyrir að rukka neyt­endur allt að 75 pró­sentum yfir aug­lýstu verði.

Líkt og Kjarn­inn hefur fjallað um áður hefur N1 beðið neyt­endur afsök­unar á verð­lag­inu og sagð­ist félagið ætla að end­ur­greiða mis­mun á upp­gefnum taxta og þrauta­vara­taxta frá mars til nóv­em­ber í fyrra. Félagið hafði áður til­kynnt að það ætl­aði aðeins að end­ur­greiða mis­mun­inn í nóv­em­ber og des­em­ber 2021.

Verðið á bens­íni og olíum hækk­aði svo um 18 pró­sent í fyrra, en sú verð­hækkun hefur aukið verð­bólg­una hér­lendis um 0,6 pró­sentu­stig. Sömu­leiðis tók verðið á raf­magni, sem hefur hald­ist nokkuð stöðugt á síð­ustu árum, kipp í síð­asta mán­uði, sam­kvæmt tölum frá Hag­stof­unni.

Krónan og ELKO í góðri stöðu

Sam­kvæmt árs­reikn­ingi Festi hefur rekstur Krón­unnar og ELKO einnig bæst tölu­vert á síð­ustu mán­uð­um. Hagn­aður Krón­unnar nam 1,6 millj­örðum króna og hefur hann tæp­lega tvö­fald­ast á milli ára. Hlut­falls­leg aukn­ing hagn­aðar hjá ELKO var svip­uð, en raf­tækja­versl­unin skil­aði 900 millj­ónum króna í hagnað í fyrra, miðað við 543 millj­ónir króna í hagnað árið 2020.

Bæði mat­vara og raf­tæki hækk­uðu tölu­vert í verði í byrjun síð­asta árs, en á síð­ustu mán­uðum hefur vægi þeirra í verð­bólg­unni þó minnkað.

Sam­kvæmt Festi var fram­legð Krón­unnar á síð­asta árs­fjórð­ungi í takti við vænt­ing­ar, en tekj­urnar voru þá um 2 pró­sentum meiri en á sama tíma árið fyrr. Tekju­aukn­ingin var nokkuð meiri hjá ELKO á sama tíma, en sam­kvæmt fjár­festa­til­kynn­ing­unni er hún meðal ann­ars vegna þess að verslun í flug­stöð Leifs Eiríks­sonar hafi verið að ná sér á strik að und­an­förnu.

ELKO nýtur þess einnig að vera með sterka stöðu á mark­aði fyrir raf­tæki, en fyr­ir­tækið hefur 49 pró­senta mark­aðs­hlut­deild þar. Engin önnur raf­tækja­sala kemst nálægt þeirri stöðu, en næst­stærsta fyr­ir­tækið á mark­aðnum er heim­il­is­tæki með 9,6 pró­senta hlut­deild af mark­aðn­um.

Fjár­fest­ing­ar, arð­greiðslur og end­ur­kaup fram undan

Festi spáir því að rekstur dótt­ur­fé­laga þess hald­ist áfram jákvæður og að rekstr­ar­hagn­aður (EBIT­DA) sam­stæð­unnar muni nema rúmum níu millj­örðum króna. Félagið segir þó nokkra óvissu vera um þá þró­un, meðal ann­ars vegna hnökra í aðfanga­keðju á heims­mark­aði og óróa á heims­mark­aðs­verði elds­neyt­is.

Í ár býst félagið svo við að greiða hluta hagn­að­ar­ins til hlut­hafa sinna í gegnum arð­greiðslur og end­ur­kaup á eigin bréf­um. Búist er við 1,58 millj­arða króna arð­greiðslum í ár, auk þess sem félagið mun kaupa eigin bréf fyrir 837 millj­ónir króna á yfir­stand­andi árs­fjórð­ungi.

Annar hluti hagn­að­ar­ins mun svo fara í auk­inn rekstur félags­ins, en það býst við að ráð­ast í fjár­fest­ingar fyrir 5,5 millj­arða króna í ár. Í fjár­fest­inga­kynn­ingu félags­ins segir að þetta ár verði „mikið fjár­fest­ing­ar­ár“.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent