Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu hóf í gær undirskriftasöfnun þar sem þess er krafist að Jón Gunnarsson víki úr embætti dómsmálaráðherra. Alls hafa tæplega 1.000 manns skrifað undir þegar um sólarhringur er liðinn frá því að undirskriftasöfnunin hófst.
Í yfirlýsingu frá hópnum, sem stofnaður var fyrr í haust á Facebook í því skyni m.a. að berjast gegn gerendameðvirkni og þöggun, segir að lítil von sé á úrbótum í málefnum þolenda ofbeldis með Jón sem dómsmálaráðherra.
„Til að bæta afar gráu ofan á svart þá velur Jón Gunnarsson sér Brynjar Níelsson til aðstoðar. Brynjar sem hleypur til í hvert skipti sem einhver ýtir við eða bara rétt kitlar feðraveldið.
Þó við reynum að hugga okkur við að þetta verði bara 18 mánuðir og vonum að ekki náist að gera óbætanlegan skaða á þeim tíma þá vitum við að nú þegar eru þolendur að berjast við kerfið og hafa engan tíma til að bíða eftir úrbótum, líf þeirra, heilsa og öryggi er nú þegar í hættu.“
Baráttuhópur um ofbeldismenningu er opinn hópur á Facebook og fylgjendur eru yfir fjögur þúsund.
Yfirlýsinguna sem birt er með undirskriftarlistanum má lesa í heild sinni hér:
Eftir að hafa séð tekin skref sl. ár í dómsmálaráðuneytinu til að bæta kerfið fyrir þolendur ofbeldis er sorglegt að sjá nýja ríkisstjórn skipa mann eins og Jón Gunnarsson í sæti dómsmálaráðherra. Mann sem hefur stutt s.k. tálmunar/fangelsisfrumvarp. Jón Gunnarsson hefur sýnt hug sinn til kvenfrelsis og sínar fornfálegu hugmyndir á fleiri vegu í gegnum sína þingmennsku m.a. þegar þungunarrofsfrumvarpið var til umræðu.
Því miður er lítil sem engin von til þess að nauðsynlegar úrbætur verði á þessum tíma.
Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu var stofnaður fyrir tveimur mánuðum að gefnu tilefni. Ofbeldi gegn konum og kynbundið ofbeldi er faraldur í okkar samfélagi og aðför að öryggi og heilsu kvenna. Þolendum er sagt að kæra en langflest mál eru felld niður áður en þau komast nokkru sinni í dómsal. Þolendur eiga það á hættu að gögn þeirra eru gerð opinber á almennum vettvangi.
Við krefjumst framfara sem nást ekki með skipan afturhaldsseggja með kvenfjandsamlegan boðskap sem æðstu yfirmanna dómsmála!