Mótmæla „skipan afturhaldsseggja með kvenfjandsamlegan boðskap“

Tæplega þúsund manns hafa skrifað undir áskorun til Katrínar Jakobsdóttur um að víkja Jóni Gunnarssyni sem dómsmálaráðherra. Baráttuhópur gegn ofbeldismenningu segir engar framfarir verða í málefnum þolenda ofbeldis með Jón sem ráðherra dómsmála.

Undirskriftalista hefur verið hrundið af stað af baráttuhópi gegn ofbeldismenningu til að hvetja til þess að Jón Gunnarsson hverfi burt úr dómsmálaráðuneytinu.
Undirskriftalista hefur verið hrundið af stað af baráttuhópi gegn ofbeldismenningu til að hvetja til þess að Jón Gunnarsson hverfi burt úr dómsmálaráðuneytinu.
Auglýsing

Bar­áttu­hópur gegn ofbeld­is­menn­ingu hóf í gær und­ir­skrifta­söfnun þar sem þess er kraf­ist að Jón Gunn­ars­son víki úr emb­ætti dóms­mála­ráð­herra. Alls hafa tæp­lega 1.000 manns skrifað undir þegar um sól­ar­hringur er lið­inn frá því að und­ir­skrifta­söfn­unin hófst.

Í yfir­lýs­ingu frá hópn­um, sem stofn­aður var fyrr í haust á Face­book í því skyni m.a. að berj­ast gegn ger­enda­með­virkni og þögg­un, segir að lítil von sé á úrbótum í mál­efnum þolenda ofbeldis með Jón sem dóms­mála­ráð­herra.

„Til að bæta afar gráu ofan á svart þá velur Jón Gunn­ars­son sér Brynjar Níels­son til aðstoð­ar. Brynjar sem hleypur til í hvert skipti sem ein­hver ýtir við eða bara rétt kitlar feðra­veld­ið.

Auglýsing

Þó við reynum að hugga okkur við að þetta verði bara 18 mán­uðir og vonum að ekki náist að gera óbæt­an­legan skaða á þeim tíma þá vitum við að nú þegar eru þolendur að berj­ast við kerfið og hafa engan tíma til að bíða eftir úrbót­um, líf þeirra, heilsa og öryggi er nú þegar í hætt­u.“

Brynjar Níelsson verður annar aðstoðarmanna dómsmálaráðherra.

Bar­áttu­hópur um ofbeld­is­menn­ingu er opinn hópur á Face­book og fylgj­endur eru yfir fjögur þús­und.

Yfir­lýs­ing­una sem birt er með und­ir­skrift­ar­list­anum má lesa í heild sinni hér:

Eftir að hafa séð tekin skref sl. ár í dóms­mála­ráðu­neyt­inu til að bæta kerfið fyrir þolendur ofbeldis er sorg­legt að sjá nýja rík­is­stjórn skipa mann eins og Jón Gunn­ars­son í sæti dóms­mála­ráð­herra. Mann sem hefur stutt s.k. tálm­un­ar/fang­els­is­frum­varp. Jón Gunn­ars­son hefur sýnt hug sinn til kven­frelsis og sínar forn­fá­legu hug­myndir á fleiri vegu í gegnum sína þing­mennsku m.a. þegar þung­un­ar­rofs­frum­varpið var til umræðu.

Því miður er lítil sem engin von til þess að nauð­syn­legar úrbætur verði á þessum tíma.

Bar­áttu­hópur gegn ofbeld­is­menn­ingu var stofn­aður fyrir tveimur mán­uðum að gefnu til­efni. Ofbeldi gegn konum og kyn­bundið ofbeldi er far­aldur í okkar sam­fé­lagi og aðför að öryggi og heilsu kvenna. Þolendum er sagt að kæra en lang­flest mál eru felld niður áður en þau kom­ast nokkru sinni í dóm­sal. Þolendur eiga það á hættu að gögn þeirra eru gerð opin­ber á almennum vett­vangi.

Við krefj­umst fram­fara sem nást ekki með skipan aft­ur­halds­seggja með kven­fjand­sam­legan boð­skap sem æðstu yfir­manna dóms­mála!

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent