MP Straumur hættir með viðskiptabankaþjónustu fyrir hluta viðskiptavina

sigurduratli.jpg
Auglýsing

MP Straum­ur, sam­ein­aður banki MP banka og Straums, hefur haft sam­band við hluta við­skipta­vina sinna, bæði ein­stak­linga og fyr­ir­tæki, og sagt þeim að bank­inn ætli að hætta með við­skipta­banka­þjón­ustu fyrir þau. Við­skipta­vinir sem Kjarn­inn hefur rætt við, sem starfs­fólk MP banka hefur hringt í að und­an­förnu til að til­kynna þetta, segja að þau hafi ekki fengið neinar upp­lýs­ingar um af hverju verið væri að hætta við­skiptum við þau en ekki aðra.

Sig­urður Atli Jóns­son, for­stjóri MP Straums, stað­festir í sam­tali við Kjarn­ann að bank­inn sé að hætta með við­skipta­banka­þjón­ustu fyrir hluta við­skipta­vina sinna. "Starfs­fólk MP banka hefur und­an­farna daga hringt í við­skipta­vini og kynnt fyrir þeim breyt­ingar á starf­semi bank­ans sam­hliða ­sam­ein­ingu MP banka og Straums fjár­fest­inga­banka. Nýjar höf­uð­stöðvar bank­ans í Borg­ar­túni verða ekki með hefð­bundið fyr­ir­komu­lag úti­bús eins og almenn­ingur þekk­ir. Því verður ekki sama þjón­usta í boði fyrir smærri fyr­ir­tæki sem vilja vera í hefð­bundnu við­skipta­sam­bandi við banka varð­andi sinn rekstur og verið hefur í höf­uð­stöðvum MP banka í Ármúla. MP banki hefur mótað sér þá stefnu að sinna fjár­mögnun til skemmri tíma í umbreyt­ing­ar­verk­efn­um, til dæmis við kaup og sölu á fyr­ir­tækj­um. Bank­inn hyggst draga úr starf­semi tengdri fjár­mögnun á rekstri fyr­ir­tækja. Breyt­ing­arnar hafa áhrif á smærri fyr­ir­tæki sem hafa verið með rekstur sinn hjá MP banka. Haft hefur verið sam­band við innan við 100 fyr­ir­tæki og hefur erind­inu almennt verið vel tek­ið."

Lögðu við­skipta­gjald á við­skipta­vini



MP banki og Straumur sam­ein­uð­ust nýver­ið. Tíma­bundið mun nýr banki bera nafnið MP Straum­ur, eða þar til nýtt nafn verður fund­ið. Sam­run­inn gekk form­lega í gegn 29. júní síð­ast­lið­inn.

Sam­ein­aður banki verður rek­inn á gömlu kenni­tölu MP banka, sem hefur við­skipta­banka­leyfi og getur þar með safnað inn­lán­um. MP banki hefur nokkrum sinnum áður sett skil­yrði sem voru til þess fall­inn að minnka þann hóp sem var í við­skipta­banka­þjón­ustu hjá bank­an­um. Stefna bank­ans gefur veirð að avera ekki í þjón­ustu hins almenna banka­neyt­enda á Íslandi. Árið 2012 ákvað MP banki að leggja sér­stakt við­skipta­gjald á alla við­skipta­vini MP banka sem voru með umfang við­skipta undir tveimur millj­ónum króna. Gjaldið var upp­haf­lega 1.100 krónur á mán­uði.

Auglýsing

Í fyrra­sum­ar, nánar til­tekið í júní 2014, var hið mán­að­ar­lega við­skipta­gjald hins vegar hækkað úr 1.100 krónum í 5.000 krón­ur. Það þýddi að árlegur kostn­aður vegna þess fór úr 13.500 krónum í 60 þús­und krón­ur, og hækk­aði því um 355 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None