Niðurstaða meirihlutans „barin fram“

Þingmenn þriggja stjórnarandstöðuflokka, m.a. varaformaður umhverfis- og samgöngunefndar, leggja til að horfið verði frá því að færa fimm virkjanakosti úr verndarflokki rammaáætlunar líkt og meirihluti nefndarinnar vill.

Þorbjörg Sigríður, Andrés Ingi og Þórunn Sveinbjarnardóttir standa að breytingatillögu við breytingatillögu á rammaáætlun.
Þorbjörg Sigríður, Andrés Ingi og Þórunn Sveinbjarnardóttir standa að breytingatillögu við breytingatillögu á rammaáætlun.
Auglýsing

„Vinna nefnd­ar­innar var góð og ekki fyrr en á loka­metrum að ég upp­lifði að nið­ur­staða meiri­hlut­ans var barin fram,“ segir Þor­björg Sig­ríður Gunn­laugs­dótt­ir, þing­maður Við­reisnar og vara­for­maður umhverf­is- og sam­göngu­nefndar um álit meiri­hluta nefnd­ar­innar á þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þriðja áfanga ramma­á­ætl­un­ar. Meiri­hlut­inn vill færa fimm virkj­un­ar­kosti til­lög­unnar úr vernd­ar­flokki í bið­flokk og þrjá úr nýt­ing­ar­flokki í bið­flokk. Þá vill hann einnig að einn vind­orku­kost­ur, Búr­fellslund­ur, verði færður úr bið­flokki í nýt­ing­ar­flokk.

Þor­björg, Andrés Ingi Jóns­son, þing­maður Pírata og Þór­unn Svein­bjarn­ar­dótt­ir, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, standa saman að breyt­inga­til­lögu við breyt­inga­til­lögu meiri­hluta nefnd­ar­inn­ar. Í henni er lagt til að fjórir virkj­ana­kostir í Skaga­firði verði ekki færðir úr nýt­ing­ar­flokki og í bið­flokk sem og að Kjalöldu­veita verði áfram í bið­flokki eins og verk­efn­is­stjórn þriðja áfanga ramma­á­ætl­unar lagði til. „Við viljum standa með ramma­á­ætlun sem verk­færi,“ segir Andrés Ingi við Kjarn­ann. „Verja vernd­ar­flokk­inn fyrir póli­tískum hrossa­kaupum stjórn­ar­flokk­anna og færa Hér­aðs­vötn og Kjalöldu aftur í vernd­ar­flokk. Þá gefst þing­mönnum tæki­færi til að sýna með atkvæði sínu hvort þau standi með nátt­úru­vernd þegar á reyn­ir.“

Breyt­ing­ar­til­laga þre­menn­ing­anna var lögð fram á þingi í dag en önnur umræða um ramma­á­ætlun er á dag­skrá þings­ins í dag.

Auglýsing

„Ég geri engar athuga­semdir við að þingið geri breyt­ingar á til­lög­um,“ segir Þor­björg Sig­ríð­ur. Lög um verndun og nýt­ingu land­svæða, ramma­á­ætl­un, séu skýr um að Alþingi taki ákvörðun og Alþingi beri ábyrgð­ina. Um sé að ræða ákvarð­anir byggðar á póli­tísku heild­ar­mati á hags­munum sem veg­ast á. Verk­efnið sé „þetta heil­brigða jafn­vægi milli nýt­ingar og vernd­ar,“ segir hún.

„Það er þess vegna í mínum huga ekki eitt og sér gagn­rýn­is­vert að þingið geri breyt­ingar á fyr­ir­liggj­andi til­lög­um. En rökin verða að halda vatni og ljóst á hvað rökum þær byggja. Og svo er bara því miður ekki.“

Illa rök­studdar breyt­ingar

Að mati Þor­bjargar eru breyt­inga­til­lögur meiri­hlut­ans um að að færa virkj­anir í Skaga­firði og Kjalöldu­veitu í efri hluta Þjórsár „al­var­legar og illa rök­studd­ar. Og þær þjóna sann­ar­lega ekki hags­munum almenn­ings.“

Einnig bendir Þor­björg á að ekki sé heldur fjallað um hversu mikil raf­orka fær­ist milli flokka með breyt­ing­ar­til­lög­un­um, þ.e. hvaða áhrif það hefur á þá raf­orku sem verður í nýt­ing­ar­flokki eftir breyt­ing­ar­til­lögur meiri­hlut­ans. „Af hálfu umhverf­is­ráð­herra hefur verið talað um mikla raf­orku­þörf í þágu orku­skipta, en ekk­ert mat er um hver áhrif þess­ara breyt­inga­til­laga verða,“ segir hún. „Að sama skapi er ekki fjallað um hag­kvæmni virkj­un­ar­kosta sem fær­ast milli flokka eða þjóð­hags­leg áhrif þeirra. Hver verða áhrifin á mark­mið stjórn­valda um orku­skipti? Verða þau dýr­ari eða ódýr­ari við þessar breyt­ingar meiri­hlut­ans?“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent