Níu Íslendingar settir á svartan lista Rússa

Rússneska utanríkisráðuneytið tilkynnti í dag að níu Íslendingar væru nú komnir á lista yfir einstaklinga sem beittir væru refsiaðgerðum vegna þátttöku Íslands í refsiaðgerðum Evrópusambandsins gegn rússneskum borgurum.

Rússneska sendiráðið í Reykjavík.
Rússneska sendiráðið í Reykjavík.
Auglýsing

Níu Íslend­ingar hafa verið settir á „svartan lista“ rúss­neskra stjórn­valda, en þetta til­kynnti rúss­neska utan­rík­is­ráðu­neytið í dag. Þetta er gert vegna þátt­töku Íslands í refsi­að­gerðum Evr­ópu­sam­bands­ins gegn rúss­neskum borg­ur­um.

Einnig hefur verið gripið gegn aðgerða gegn 16 Norð­mönn­um, þremur Fær­ey­ingum og þremur Græn­lend­ing­um, en Nor­eg­ur, Fær­eyjar og Græn­land hafa tekið þátt í refsi­að­gerðum Evr­ópu­sam­bands­ins þrátt fyrir að standa utan sam­bands­ins, rétt eins og Ísland.

Ekki liggur um hvaða ein­stak­linga er þarna um að ræða, en í til­kynn­ingu rúss­neska ráðu­neyt­is­ins er talað um að aðgerð­irnar bein­ist gegn þing­mönn­um, ráð­herrum, fólki úr við­skipta­líf­inu, fræði­mönn­um, fjöl­miðla­fólki og opin­berum per­sónum sem hafi „kynt undir and-rúss­neskri orð­ræðu“ og skipu­lagt og komið í verk stefnu­málum sem bein­ast gegn Rúss­landi.

Ein­stak­ling­arnir sem um ræðir mega, sam­kvæmt því sem segir í til­kynn­ingu rúss­neska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, ekki ferð­ast til Rúss­lands.

Auglýsing

Ísland hefur tekið undir allar þving­un­ar­að­gerðir Evr­ópu­sam­bands­ins gegn Rúss­landi sem gripið hefur verið til í kjöl­far þess að rúss­neski her­inn réðst inn í Úkra­ínu í lok febr­ú­ar­mán­að­ar.

Á vef utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins má finna yfir­lit yfir þær aðgerðir sem Ísland tekur þátt í. Þar á meðal eru ferða­bönn og fryst­ing fjár­muna til­tek­inna ein­stak­linga. Þessar aðgerðir bein­ast meðal ann­ars að Vla­dimír Pútín, for­seta Rúss­lands, og Sergei Lavrov utan­rík­is­ráð­herra, en einnig er þeim beint að með­limum þjóðar­ör­ygg­is­ráðs Rúss­lands sem studdu við­ur­kenn­ingu sjálf­stæðis svæð­anna Donetsk og Luhansk í Úkra­ínu, ein­stak­lingum sem tengj­ast rík­is­reknum fjöl­miðlum og ein­stak­lingum úr fjár­mála­geir­an­um.

Þá ná aðgerð­irnar sem Ísland tekur þátt í til flestra þing­manna rúss­neska þings­ins og bein­ast þær einnig að ein­stak­lingum sem sagðir eru stunda áróð­urs­starf­semi fyrir rúss­neska rík­ið, lobbí­istum og rúss­neskum auð­mönn­um.

Rússar hafa svarað þessu með því að beita helstu leið­toga Evr­ópu­sam­bands­ins og ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins sam­bæri­legum aðgerðum – og nú ein­hverjum níu Íslend­ing­um, 16 Norð­mönnum og þremur Fær­ey­ingum og Græn­lend­ing­um, sem áður seg­ir.

Rúss­nesk stjórn­völd hafa skil­greint Ísland sem „óvin­veitt ríki“ en hingað til hafa einu gagn­að­gerðir Rússa sem bein­ast að Íslandi eða Íslend­ingum falist í því að loka loft­helgi sinni fyrir loft­förum frá Íslandi, rétt eins og tugum ann­arra ríkja.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent