Nýtt fasteignamat veldur titringi

14932775807-94ebf081f4-o.jpg
Auglýsing

Útreikn­ingar Þjóð­skrár á fast­eigna­mati atvinnu­hús­næðis fyrir árið 2015 náðu ein­ungis til 56 pró­senta atvinnu­hús­næð­is. Það er versl­un­ar-, skrif­stofu-, hót­el- og iðn­að­ar­hús­næði. Þar nemur hækk­unin átján pró­sentum á milli ára. Rest­in, 44 pró­sent atvinnu­hús­næð­is, svo sem spít­al­ar, skól­ar, heima­vist, leik­skólar og íþrótta­hús, var tekin út fyrir sviga. Þar nemur hækkun fast­eigna­mats á milli ára ein­ungis fjórum pró­­sent­um. Þessi flokkun atvinnu­hús­næðis hefur löngum verið umdeil­an­leg.

Hækk­andi fast­eigna­mat hefur víð­tæk áhrif, en lögum sam­kvæmt er því er ætlað að end­ur­spegla gang­verð fast­eigna og mark­aðs­verð­mæti þeirra. Fast­eigna­skatt­ur, fast­eigna­gjöld, reikn­ast af fast­eigna­mati húss og lóð­ar, og þannig hækka opin­ber gjöld til sveit­ar­fé­lag­anna sam­hliða hækk­andi fast­eigna­mati. Til að mynda er álagn­ing­ar­pró­senta fast­eigna­skatts hjá Reykja­vík­ur­borg 0,2 pró­sent á íbúð­ar­­hús­næði, 1,65 pró­sent á atvinnu­hús­næði og 1,32 pró­sent á aðrar eign­ir.

Nýja fast­eigna­matið mun hækka tekjur sveit­ar­fé­lag­anna af atvinnu­hús­næði um rúm­lega millj­arð króna árlega. Ljóst er að eig­endur atvinnu­hús­næð­is, til að mynda fast­eigna­­fé­lög­in, munu leita allra leiða til að velta slíkri hækkun út í verð­lagið við gerð og end­ur­nýjun leigu­samn­inga, með til­heyr­andi og óhjá­kvæmi­legri hækkun leigu­verðs. Fyr­ir­tæki sem eiga sitt hús­næði fá strax hækkun á sinn hús­næð­is­­kostn­að. Hærri hús­næð­is­kostn­aður eða hækkun leigu­verðs leiðir svo til hærri fram­leiðslu­kostn­aðar fyrir fyr­ir­tæki, sem neyð­ast þá til að hækka verð á vöru og þjón­ustu með ófyr­ir­séðum verð­bólgu­á­hrif­um.

Auglýsing


Lestu ítar­lega umfjöllun um hækkað fast­eigna­mat atvinnu­hús­næðis og áhrif þess í nýj­ustu útgáfu Kjarn­ans hér.

[em­bed]htt­p://issu­u.com/kjarn­inn/docs/2014_09_04/8[/em­bed]

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None