Öfgafullar hitabylgjur 160 sinnum líklegri vegna loftslagsbreytinga

Meðalhitinn í Bretlandi á nýliðnu ári reyndist 10,3 gráður. Það er met. Í sumar var annað met slegið er hitinn fór yfir 40 gráður. Afleiðingarnar voru miklar og alvarlegar.

Hitabylgja á Bretlandseyjum
Auglýsing

Vegna ham­fara­hlýn­unar var 160 sinnum lík­legra að hita­bylgjur gengju yfir Bret­landseyjar síð­asta sumar líkt og raunin varð. Hvert hita­metið á fætur öðru var sleg­ið, hættu­á­stand skap­að­ist vegna hita og sam­göngur fóru úr skorð­um.

Auglýsing

Breska veð­ur­stofan stað­festi í dag að nýliðið ár sé það hlýjasta í land­inu frá því að mæl­ingar hófust. Með­al­hiti árs­ins er í fyrsta sinn í mæl­inga­sög­unni yfir 10 gráð­um. Sér­fræð­ingar veð­ur­stof­unnar hafa reiknað út að gera megi ráð fyrir hita­bylgjum eins og þeim sem gengu yfir landið í sumar á þriggja til fjög­urra ára fresti. Án lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum hefði mátt gera ráð fyrir slíkum hita­bylgjum einu sinni á fimm alda tíma­bili. Það er að segja: Einu sinni á 500 ára tíma­bili.

­Með­al­hiti árs­ins 2022 í Bret­landi reynd­ist 10,03 gráð­ur. Þar með er fyrra met frá árinu 2014, 9,88 gráð­ur, sleg­ið. Síð­asta ár var því 0,89 gráðum heit­ara en síð­ustu þrír ára­tugir að með­al­tali, segir í gögnum bresku veð­ur­stof­unn­ar. Þetta er stað­reynd þrátt fyrir að des­em­ber hafi verið óvenju kaldur og því dregið með­al­hita árs­ins tölu­vert nið­ur.

Mörgum var illa brugðið er hiti fór í fyrsta sinn frá því að mæl­ingar hófust yfir 40 gráður á Bret­landseyj­um. Áður hafði metið verið 38,7 gráð­ur.

Talið er að þús­undir ótíma­bærra dauðs­falla megi rekja til hita­bylgj­anna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent