Ólafur Þór Hauksson skipaður héraðsaksóknari

olafur--or.jpg
Auglýsing

Ólöf Nor­dal inn­an­rík­is­ráð­herra hefur skipað Ólaf Þór Hauks­son, sér­stakan sak­sókn­ara, í emb­ætti  hér­aðs­sak­sókn­ara. Hún hefur einnig skipað Kol­brún­u Bene­dikts­dótt­ur, sak­sókn­ara, í emb­ætti vara­hér­aðs­sak­sókn­ara. Frá þessu er greint á vef inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins.

Emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara mun fara með ákæru­vald á lægra ákæru­valds­stigi, ákæru­með­ferð saka­mála og sak­sókn fyrir hér­aðs­dómi, Þá mun emb­ættið ann­ast lög­reglu­rann­sóknir í skatta- og efna­hags­brota­mál­um, ásamt rann­sóknum á brotum starfs­manna lög­reglu og brotum gegn vald­stjórn­inni. Starf­semi emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara og skatt­rann­sókn­ar­stjóra mun því flytj­ast til þess þegar emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara tekur til starfa 1. jan­úar 2016.

Upp­haf­lega stóð til að skipa í emb­ættið 1. októ­ber en taf­ist hefur að til­kynna um nið­ur­stöð­una.

Auglýsing

Emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara og vara­hér­aðs­sak­sókn­ara voru aug­lýst 16. júlí og bár­ust fimm umsóknir um hvort emb­ætti. Inn­an­rík­is­ráð­herra fól nefnd að fara yfir umsóknir sem skil­aði ráð­herra rök­studdu áliti á hæfni umsækj­enda og taldi hún alla umsækj­endur upp­fylla hæf­is­skil­yrði.

Ólafur Þór Hauks­son, sér­stakur sak­sókn­ari, og Bryn­dís Björk Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri sóttu bæði um emb­ætti hér­aðs­sak­sókn­ara. Björn Þor­valds­son, sak­sókn­ari hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara sem hefur sak­sótt nokkur af stærstu hrun­málum þess, sótt­ist einnig eftir starf­inu. Það gerðu Jón H. B. Snorra­son, aðstoð­ar­lög­reglu­stjóri hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, og Hulda Elsa Bjög­vins­dóttir sak­sókn­ari líka.

Fimm sóttu um starf vara­hér­aðs­sak­sókn­ara. Björn Þor­valds­son og Hulda Elsa Björg­vins­dóttir sótt­ust líka eftir því starfi, líkt og starfi hér­aðs­sak­sókn­ara. Það gerðu Arn­þrúður Þór­ar­ins­dótt­ir, Kol­brún Bene­dikts­dóttir og Daði Krist­jáns­son einnig.







Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None