„Við færum ykkur góð tíðindi hér í dag,“ sagði Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra á blaðamannafundi í Safnahúsinu í dag þar sem afléttingaráætlun stjórnvalda var kynnt. Áætlunin er í þremur skrefum og gerir ráð fyrir að slakað verði á takmörkunum í þremur skrefum. Fyrsta skrefið tekur gildi á miðnætti, annað 24. febrúar og í því þriðja, 14. mars, er gert ráð fyrir að öllum takmörkunum verði aflétt.
„Við erum að sjá að það eru að verða raunverulegar breytingar í baráttu okkar við faraldurinn, bæði vegna þess að veiran sjálf sem við erum að eiga við hefur breytt um eðli með nýju afbrigði en líka vegna góðrar bólusetningarstöðu og mikils árangurs íslenska heilbrigðiskerfisins í að takast á við veiruna og sinna því fólki sem smitast af henni.“
Fyrsta skref afléttingarinnar tekur gildi á miðnætti þegar almennar fjöldatakmarkanir verða 50 manns, nándarregla verður 1 metri, krár og skemmtistaðir mega opna að nýju og opnunartími þeirra og annarra veitingastaða verður lengdur um tvær klukkustundir.
Þá verður heimilt að halda sitjandi viðburði fyrir 500 manns að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Takmarkanir í skólum verða að mestu óbreyttar. Þetta er megininntak breytinga á reglugerð um samkomutakmarkanir sem tekur gildi 29. janúar samkvæmt ákvörðun heilbrigðiráðherra.
Aðrar helstu breytingar sem taka gildi á morgun eru þessar:
- Almennar fjöldatakmarkanir fari úr 10 í 50 manns.
- Nándarregla fari úr 2 metrum í 1 metra.
- Óbreytt grímuskylda, sem tekur þó almennt mið af nándarreglu.
- Sund-, baðstaðir, líkamsræktarstöðvar og skíðasvæði verði heimilt að hafa opið með 75% afköstum.
- Íþróttakeppnir verði áfram heimilar með 50 þátttakendum og áhorfendur séu leyfðir á ný.
- Hámarksfjöldi í verslunum geti mest orðið 500 manns.
- Skemmtistöðum, krám, spilastöðum og spilakössum verði heimilað að opna á ný.
- Veitingastöðum, þ.m.t. krám og skemmtistöðum, verði heimilt að hleypa nýjum viðskiptavinum til kl. 23.00 en gestum verði gert að yfirgefa staðina kl. 00.00.
- Á sitjandi viðburðum verði heimilt að taka á móti allt að 500 gestum í hverju hólfi, viðhalda skuli 1 metra nándarreglu milli óskyldra aðila auk grímuskyldu. Ekki verði þörf á hraðprófum.
- Í skólum verði óbreyttar takmarkanir, þó þannig að þær verði aðlagaðar framangreindum tilslökunum eftir því sem við á.
- Reglugerðin gildi í tæpar fjórar vikur til og með 24. febrúar.
Fór ekki eftir tillögum sóttvarnalæknis í einu og öllu
„Þetta er það bjartasta sem ég hef lesið hingað til,“ sagði Willum Þór Þórsson um minnisblað sóttvarnalæknis um afléttingaráætlunina. Hann fór þó ekki að tillögum sóttvarnalæknis í einu og öllu, en hann vék lítillega frá tillögum hans með því að láta nýju reglurnar taka gildi fyrr, lengja opnunartíma veitingastaða um tvær klukkustundir í stað einnar og hækka hámarksfjölda í verslunum.
Í minnisblaðisínu leggur sóttvarnalæknir fram áætlun að afléttingu opinberra sóttvarnaaðgerða sem hann telur rétt að gera í skrefum. Í tilkynningu Stjórnarráðsins er tekið fram að sóttvarnalæknir áréttar að meðan á afléttingum stendur megi búast við að samfélagssmitum muni fjölga tímabundið sem geti bæði haft þau áhrif að þeim sem veikist alvarlega fjölgi en jafnframt geti starfsemi margra fyrirtækja raskast vegna veikinda starfsmanna. Neyðarástand geti því skapast á mörgum vinnustöðum sem krefjist sérstakra úrræða og fyrirtæki þurfi að vera undir það búin að starfa í einhvern tíma með skertu vinnuafli. Mikilvægt sé að hafa í huga að faraldrinum ljúki ekki hér á landi fyrr en gott samfélagslegt ónæmi hafi skapast, sem gæti náðst eftir tæpa tvo mánuði.
Að mati sóttvarnalæknis er skynsamlegt að miða við að um miðjan mars 2022 verði öllum takmörkunum aflétt svo fremi sem núverandi forsendur haldi, þ.e. ekki komi upp ný afbrigði veirunnar og aukning verði ekki á alvarlegum veikindum sem valdi of miklu álagi á heilbrigðiskerfið eða of mikil veikindaforföll starfsmanna verði í ýmsum fyrirtækjum sem skapi neyðarástand.
Heilbrigðisráðherra og ríkisstjórnin munu hafa afléttingaráætlunina til hliðsjónar vegna næstu afléttinga og verður staðan metin reglulega, einkum álag á heilbrigðiskerfið, og verður brugðist við í samræmi við stöðuna. Það getur þýtt að ráðist verði fyrr í afléttingar en áætlunin gerir ráð fyrir eða þeim frestað ef forsendur breytast, svo sem vegna nýrra afbrigða veirunnar.
Katrín segir að ef allt gengur eftir áætlun verði búið að aflétta öllum aðgerðum um miðjan mars. „Ef allt gengur vel eins og við öll að sjálfsgöðu vonum getum við ekki bara horft fram á hækkandi sól í mars heldur líka eðlilegt samfélag,“ sagði forsætisráðherra.