Örplast greint í nauta- og svínakjöti í fyrsta sinn

Plastagnir finnast í svína- og nautakjöti, einnig í blóði lifandi svína og nautgripa sem og fóðri þeirra samkvæmt nýrri rannsókn hollenskra vísindamanna.

Svín á leið til slátrunar.
Svín á leið til slátrunar.
Auglýsing

Örplast hefur fund­ist í svína- og nauta­kjöti í fyrsta sinn sem og í blóði naut­gripa og svína á búum. Þetta er nið­ur­staða nýrrar rann­sóknar vís­inda­manna við Vri­je-há­skóla í Amster­dam. Þeir fundu plast­agnir í meiri­hluta sýna sem þeir tóku úr bæði kjöti og mjólk­ur­vörum og í hverju blóð­sýni sem þeir tóku af lif­andi dýrum á búum.

Örplast fannst einnig í öllum sýnum sem tekin voru úr fóðri dýr­anna sem þykir benda til þess hvernig agn­irnar kom­ast í dýr­in. Afurð­un­um, kjöt­inu og mjólk­ur­vör­un­um, var svo einnig pakkað í plast sem gæti verið önnur leið.

Þetta eru sömu vís­inda­menn og greindu frá því í mars að örplast hefði fund­ist í manna­blóði. Við rann­sókn­ina á dýr­unum og kjöt­inu not­uðu þeir sömu aðferð­ir. Þeir segja að þegar örplast kom­ist inn í lík­ama manna og dýra ber­ist það með blóð­rásinni til líf­færa þar sem það geti safn­ast upp.

Auglýsing

Fjallað er um rann­sókn­ina í breska blað­inu The Guar­dian og þar segir að enn sé ekki vitað með vissu hver áhrif örplasts séu á heilsu manna og dýra. Hins vegar hafi rann­sóknir á rann­sókn­ar­stofum sýnt að örplast geti farið inn í frum­ur. Þá benda þeir jafn­framt á að vitað er að aðrar smáar agnir á borð við svifryk geti haft mikil heilsu­far­s­vanda­mál og valdi dauða millj­óna manna á hverju ári.

Örplast um alla jörð

Örplast hefur fund­ist um alla jörð­ina, allt frá tindi Ever­est til heim­skauta­svæð­anna beggja. Einnig hefur það fund­ist á dýpstu hafs­botn­um.

Áður hafði verið sýnt fram á að fólk inn­byrðir örplast með mat og drykkj­ar­vatni. Þá hefur einnig verið sýnt fram á að við öndum örplasti í and­rúms­loft­inu að okk­ur.

Rann­sókn hol­lensku vís­inda­mann­anna er aðeins byrj­unin á frek­ari rann­sókn­um, bæði þar í landi og víðar um heim. Í þess­ari ein­stöku til­raun voru aðeins tekin tólf blóð­sýni úr naut­gripum og jafn­mörg úr svín­um. Í öllum sýn­unum fannst örplast. Tekin voru 25 sýni úr mjólk­ur­vörum, úr mjólk­ur­fernum í búðum sem og úr mjólk­ur­geymum á mjólk­ur­bú­um. Í átján sýnum fannst örplast.

Örplast greind­ist svo í sjö af þeim átta sýnum af nauta­kjöti sem voru rann­sökuð og í fimm af átta sýnum úr svína­kjöti.

Hvað er örplast?

Örplast er plast­ögn sem er minni en 5 milli­metr­ar. Í sumum til­vikum er fram­leitt sér­stakt örplast sem sett er í dekk, snyrti­vörur og áburð. Í öðrum til­vikum verður til örplast þegar stærri hlutir úr plasti brotna niður í smáar agn­ir, jafn­vel örsmáar nanóagn­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent