Hlutir tengdir sjávarútvegi og plast hefur verið algengasta ruslið sem finnst hefur við kerfisbundna vöktun stranda á Íslandi í ár. Í apríl fannst óvenjumikið af klæðnaði í Bakkavík á Seltjarnarnesi.
Þetta kemur fram á vef Umhverfisstofnunar.
Plastúrgangur getur haft gríðarlegar afleiðingar á sjávarlífið og geta lífverur fest sig í gömlum netum, tógum eða plastfilmum, kafnað eða étið ýmiss konar plast. Plastúrgang má finna um nær allan sjó og hefur hann borist til fjarlægra staða eins og heimskautanna og djúpsjávar heimshafanna.
Sjö vöktunarstrandir víðsvegar um landið
Til að fylgjast með þróun á magni og samsetningu þess rusls sem berst á strendur Íslands hefur Umhverfisstofnun valið ákveðin strandsvæði til reglulegrar vöktunar. Þar er allt rusl tínt og flokkað samkvæmt staðlaðri aðferðafræði, að því er fram kemur hjá stofnuninni.
Vöktunarstrandir eru sjö talsins en nýlega bættist við ströndin Ýsuhvammur í nágrenni Reyðarfjarðar en hún er sú eina á Austurlandi. Samið hefur verið við Náttúrustofu Austurlands um að vakta ströndina þrisvar sinnum á ári. Starfsmaður Umhverfisstofnunar aðstoðaði starfsmenn Náttúrustofunnar við fyrstu vöktunina.
Strandir í vöktun Umhverfisstofnunar eru Surtsey, Bakkavík á Seltjarnarnesi, Búðavík á Snæfellsnesi, Rauðasandur, Rekavík bak Höfn á Hornströndum, Víkur á Skagaströnd og Ýsuhvammur.
Hluti af aðgerðaráætlun OSPAR
Fram kemur hjá Umhverfisstofnun að þau hafi byrjað að vakta rusl á ströndum sumarið 2016, samkvæmt aðferðafræði og leiðbeiningum frá OSPAR sem er samningur um verndun hafrýmis Norðaustur-Atlantshafsins.
Tilgangur vöktunarinnar er að finna uppruna rusls á ströndum, hvaða flokkar rusls safnast mest fyrir, meta magn sem safnast fyrir yfir ákveðið tímabil og að fjarlægja ruslið. Með vöktuninni uppfyllir Ísland hluta af aðgerðaráætlun OSPAR, um að draga úr skaðsemi úrgangs í hafi og á ströndum.