Penninn og Storytel með yfirburði á bókamarkaði

Markaðshlutdeild Pennans í smásölumarkaði prentaðra bóka nemur 50-55 prósentum og Storytel selur nær allar bækur á hljóðbókamarkaði, samkvæmt nýrri úttekt Samkeppniseftirlitsins.

Storytel selur nær allar íslenskar hljóðbækur hér á landi.
Storytel selur nær allar íslenskar hljóðbækur hér á landi.
Auglýsing

Penn­inn og Storytel eru hvor um sig með mark­aðs­ráð­andi stöðu í smá­sölu prent­aðra bóka og hljóð­bóka. Sömu­leiðis er For­lagið með langstærstu hlut­deild­ina á mark­aði fyrir útgáfu prent­aðra bóka, en Storytel gefur út yfir­gnæf­andi meiri­hluta allra hljóð­bóka. Þetta kemur fram í nýrri úttekt Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins um sam­þjöppun á bóka­mark­aði, sem birt­ist á vef stofn­un­ar­innar fyrr í dag.

Tveir mis­mun­andi mark­aðir

Í úttekt­inni vísar stofn­unin í könnun sem Zenter fram­kvæmdi í fyrra á því í hvaða aðstæðum fólk læsi prent­aðar bækur eða hlust­aði á hljóð­bæk­ur. Sam­kvæmt henni eru prent­aðar bækur mun vin­sælli til gjafa en hljóð­bæk­ur, á meðan hljóð­bæk­urnar virð­ast nýt­ast við heim­il­is­störf, á æfingum eða í göngu­ferð­um. Prent­aðar bækur eru aftur á móti vin­sælli meðal for­eldra sem lesa fyrir börnin sín og þegar fólk fer í frí.

Sam­kvæmt Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu leiða þessar nið­ur­stöður í ljós að vís­bend­ingar séu um að hljóð­bækur og prent­aðar bækur myndi sér­staka mark­aði, þar sem hljóð­bækur séu keyptar í öðrum til­gangi en raf­bæk­ur.

Auglýsing

Mikil sam­þjöppun á mark­aði

Mikil sam­þjöppun er á mark­aði fyrir útgáfu bóka ef honum er skipt upp eftir því hvort bæk­urnar séu á prent­uðu eða staf­rænu formi. Þannig ber útgáfu­fé­lagið For­lagið höfuð og herðar yfir önnur útgáfu­fé­lög prent­aðra bóka, en fyr­ir­tækið gefur út ríf­lega þriðju hverja prent­aða bók hér á landi. Næst á eftir koma útgáfu­fé­lögin Bjartur og Ver­öld, en mark­aðs­hlut­deild þeirra er þó ein­ungis þriðj­ungur af hlut­deild For­lags­ins.

Enn meiri sam­þjöppun ríkir á mark­aði yfir smá­sölu prent­aðra bóka, en þar hefur Penn­inn 50-55 pró­senta mark­aðs­hlut­deild, sem þýðir að fyr­ir­tækið selji meiri­hluta allra seldra bóka á prent­uðu formi. Næst á eftir koma Hagar með 10-15 pró­senta mark­aðs­hlut­deild.

Á mark­aði hljóð­bóka hefur Storytel hins vegar algjöra yfir­burði, bæði í útgáfu og smá­sölu bóka. Sam­kvæmt Sam­keppn­is­eft­ir­lit­inu gefur Storyside, útgáfu­fyr­ir­tæki Storyt­el, út 80-85 pró­sent allra raf­bóka á íslenska mark­aðn­um, auk þess sem fyr­ir­tækið selur 95-100 pró­sent allra hljóð­bóka á íslensku hér­lend­is.

Eru þetta tveir mark­að­ir?

Sam­kvæmt Jóni Schev­ing Thor­steins­syni, sem vann töl­fræði­lega grein­ingu á bóka­mark­aði fyrir For­lagið í fyrra, bendir könnun Zenter aftur á móti til þess að prent­aðar bækur og hljóð­bækur séu á sama mark­að­in­um. Í grein sem Jón skrif­aði í Vís­bend­ingu í byrjun þessa árs segir hann að best væri að skil­greina mark­að­inn út frá les­endum og hlust­end­um.

Þar sem meiri­hluti þeirra sem keyptu hljóð­bók höfðu einnig keypt prent­aða bók nýlega mætti draga þá ályktun að vör­urnar séu að miklu leyti stað­kvæmd­ar­vörur og ætti því að skil­greina þær á sama mark­aði, að mati Jóns.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent