PLAY tapaði 3,6 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum ársins

Flugfélagið Play hefur tapað 6,5 milljörðum króna frá byrjun síðasta árs. Starfsemin komst fyrst í fullan rekstur í júlí og félagið spáir þvi að það sýni jákvæða rekstrarafkomu á síðari hluta yfirstandandi árs.

Play Mynd: Play
Auglýsing

Flug­fé­lagið PLAY, sem skráð er á First Nort­h-­mark­að­inn, tap­aði 14,3 millj­ónum Banda­ríkja­daga, um tveimur millj­örðum króna, á öðrum árs­fjórð­ungi yfir­stand­andi árs ef miðað er við gengi Banda­ríkja­dals í dag. Sam­tals nemur tap PLAY á fyrri hluta árs­ins 2022 25,6 millj­ónum Banda­ríkja­dala, um 3,6 millj­örðum króna miðað við núver­andi gengi. ÞEgar við bæt­ist 2,9 millj­arða króna tap á síð­asta ári, miðað við gengi Banda­ríkja­dals í lok þess árs, þá hefur félagið alls tapað 6,5 millj­örðum króna frá byrjun árs 2021. 

Í til­kynn­ingu frá PLAY sem send var út í dag vegna upp­gjörs ann­ars árs­fjórð­ungs kemur fram að rekstr­ar­nið­ur­staðan hafi verið við­búin þar sem félagið hafði enn ekki náð til­ætl­aðri stærð­ar­hag­kvæmni á öðrum árs­fjórð­ungi, sem stendur frá byrjun apríl til loka júní­mán­að­ar. „Á öðrum árs­fjórð­ungi var helsta áherslan á að skala starf­sem­ina upp í aðdrag­anda sum­ará­ætl­un­ar­innar og tengiflugs­leiða­kerf­is­ins en það var ekki fyrr en í byrjun þriðja árs­fjórð­ungs sem allt tengiflugs­leiða­kerfið var farið af stað með sex flug­vélar í notk­un. Í júlí var starf­semin komin í fullan rekstur eftir að félagið hafði rutt sér til rúms á fjölda nýrra mark­aða með afger­andi hætt­i.“

PLAY gerir ráð fyrir að far­þegar félags­ins verði um 800 þús­und á þessu ári og að veltan verði um 20 millj­arðar króna, en 2022 er fyrsta heila starfsár félags­ins. Spár PLAY sýni fram á jákvæða rekstr­ar­af­komu á síð­ari hluta yfir­stand­andi árs. 

PLAYflýgur nú til 25 áfanga­staða.

Eigið fé PLAY var um 67 millj­ónir Banda­ríkja­dala um síð­ustu ára­mót. Það var um 42,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala, um sex millj­arðar króna á núver­andi gengi, um mitt þetta ár og hafði því dreg­ist saman um rúman þriðj­ung.

Auglýsing
Í til­kynn­ingu félags­ins segir að fjár­hags­staða PLAY sé áfram sterk. Hand­bært fé í lok júní hafi verið 39,5 millj­ónir Banda­ríkja­dala, tæp­lega 5,6 millj­arðar króna, og eig­in­fjár­hlut­fallið 13,4 pró­sent. Félagið hafi engar ytri vaxta­ber­andi skuld­ir. 

Fjár­hags­staða PLAY sé eftir sem áður sterk. Hand­bært fé þann 31. mars var 42,12 millj­ónir Banda­ríkja­dala. Eig­in­fjár­hlut­fall var 22% og félagið er með engar ytri vaxta­ber­andi skuld­ir.

Mark­aðsvirði fallið um rúma sex millj­arða

PLAY, skráði sig á First North mark­að­inn í fyrra. Í hluta­fjár­­­út­­­­­boði sem fór fram í aðdrag­anda skrán­ingar voru seldir hlutir fyrir 4,3 millj­­­arða króna.

Eft­ir­­­spurn var átt­­­föld en alls bár­ust til­­­­­boð upp á 33,8 millj­­­arða króna. Útboðs­­­­gengið hjá PLAY nam 20 krónum á hlut fyrir til­­­­­­­boð yfir 20 millj­­­­ónum króna og 18 krónum á hlut fyrir til­­­­­­­boð undir 20 millj­­­­ón­um króna.

Á fyrsta við­­­skipta­degi með bréf félags­­­ins eftir skrán­ingu hækk­­­aði virði þeirra um 23 til 37 pró­­­sent og dagsloka­­­gengið þann dag, 9. júlí í fyrra, var 24,6 krónur á hlut. Í októ­ber náði hluta­bréfa­verðið því að verða 29,2 krónur á hlut. Síðan þá hefur það hríð­­­fallið og fór um tíma niður í 15,6 krónur á hlut í júní síð­ast­liðn­um. Bréfin hafa þó tekið aðeins við sér síð­ari hluta sum­ars og gengið var 20,3 króna á hlut í lok dags í dag. Virðið hefur því dreg­ist saman um 30 pró­sent frá því í haust. 

Mark­aðsvirðið er um 14,3 millj­­­arðar króna nú sem er 6,2 millj­­­örðum króna minna en í októ­ber. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent