Reykjanesbær vill hærri arðgreiðslur frá HS Veitum vegna skulda

reykjanesbaer.jpg
Auglýsing

Reykja­nes­bær vill hærri arð­greiðslur frá HS Veit­um, til að bregð­ast við grafal­var­legri fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­lags­ins. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans er þessa hug­mynd að finna í sér­stakri aðgerð­ar­á­ætlun sem Reykja­nes­bær hyggst ráð­ast í vegna skulda­vanda sveit­ar­fé­lags­ins.

Arð­greiðslur HS Veitna á þessu ári, vegna rekstr­ar­árs­ins 2013, námu 300 millj­ónum króna, en sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans mun Reykja­nes­bær fara fram á að arð­greiðslur á næsta ári vegna yfir­stand­andi rekstr­ar­árs, verði um 600 millj­ónir króna.

Reykja­nes­bær ­fékk 200 millj­ónir í arð­greiðslur á þessu ári



Reykja­nes­bær á í dag rétt ríf­lega helm­ings­hlut í HS Veitum hf., en sveit­ar­fé­lagið fékk um 200 millj­ónir króna í sinn hlut í formi arð­greiðslna á þessu ári vegna rekstr­ar­árs­ins 2013. Þá átti sveit­ar­fé­lagið tæp­lega 67 pró­senta hlut í veitu­fyr­ir­tæk­inu, en síðan þá hef­ur ­sam­lags­fé­lagið Ursus I, sem er í meiri­hluta­eigu Heið­ars Más Guð­jóns­sonar fjár­fest­is, eign­ast fimmtán pró­senta hlut Reykja­nes­bæjar í veitu­fyr­ir­tæk­inu. Þá tryggði Ursus ­sér sömu­leiðis ríf­lega 16,8 pró­senta hlut Orku­veitu Reykja­víkur í HS Veitum í febr­ú­ar­mán­uði síð­ast­liðn­um, fyrir rúma 1,5 millj­arða króna. Við söl­una sam­þykkti Orku­veita Reykja­víkur að arð­greiðslur vegna árs­ins 2013 rynnu í sjóði Ursus, eða um 70 millj­ónir króna. End­an­legt sölu­verð hækk­aði í sam­ræmi við arð­greiðsl­una.

Ef hug­mynd Reykja­nes­bæj­ar hlýtur fram­göngu á meðal hlut­hafa veitu­fyr­ir­tæk­is­ins, mun sveit­ar­fé­lag­ið fá um 300 millj­óna króna arð­greiðslu á næsta ári. Aðrir hlut­hafar í HS Veitum eru eins og áður seg­ir ­Ursus I, sem fer með ríf­lega 34 pró­senta hlut, Hafn­ar­fjarð­ar­bær, sem á ríf­lega 15 pró­senta hlut, og Sand­gerð­is­bær, sem fer með 0,1 pró­sents hlut í veitu­fyr­ir­tæk­inu.

Auglýsing

Sveit­ar­fé­lagið getur ekki staðið við skuld­bind­ingar



Þann 14. októ­ber síð­ast­lið­inn sagði DV frá neyð­ar­fundi sem hald­inn var í bæj­ar­stjórn Reykja­nes­bæjar dag­inn áður, þar sem lögð voru fram frum­drög svartrar skýrslu endu­skoð­un­ar­fyr­ir­tæk­is­ins KPMG um fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­lags­ins. Sam­kvæmt heim­ildum DV skortir bæj­ar­sjóð Reykja­nes­bæjar 15 millj­arða króna til að geta staðið við lög­bundnar skuld­bind­ingar sínar um að koma skuldum niður fyrir 150 pró­sent af árlegum tekjum sveit­ar­fé­lags­ins.

Reykja­nes­bær hyggst kynna nið­ur­stöður skýrslu KPMG á opnum íbúa­fundi, sem verður opinn fjöl­miðl­um, í Stapa á mið­viku­dag­inn. Þar verður sam­hliða kynnt fyrr­greind aðgerð­ar­á­ætlun sveit­ar­fé­lags­ins, sem er í sam­ræmi við til­lögur KPMG. Áætl­unin hefur hlotið nafnið "Sókn­in."

Til marks um alvar­lega skulda­stöðu Reykja­nes­bæjar hefur varla króna runnið úr sjóðum sveit­ar­fé­lags­ins til nið­ur­greiðslu skulda á síð­ast­liðnum árum, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None