Reykvíkingar, háskólamenntaðir og kjósendur Vinstri grænna báru mest traust til Drífu

Drífa Snædal naut mests trausts kjósenda allra flokka nema Sósíalistaflokks Íslands til þess að leiða Alþýðusamband áfram næstu tvö árin, samkvæmt niðurstöðum nýlegrar könnunar sem Gallup var falið að framkvæma.

Í könnuninni var spurt hvaða verkalýðsleiðtoga fólk treysti helst til að leiða ASÍ. Auk þessara fjögurra var nafn Kristjáns Þórðar Snæbjarnarsonar á listanum.
Í könnuninni var spurt hvaða verkalýðsleiðtoga fólk treysti helst til að leiða ASÍ. Auk þessara fjögurra var nafn Kristjáns Þórðar Snæbjarnarsonar á listanum.
Auglýsing

Skoð­ana­könnun sem „áhuga­hópur um fram­tíð verka­lýðs­hreyf­ing­ar­inn­ar“ lét Gallup fram­kvæma fyrr í þessum mán­uði sýndi að Drífa Snæ­dal naut mests traust hjá stuðn­ings­fólki allra stjórn­mála­flokka til þess að leiða ASÍ næstu tvö árin, nema hjá væntum kjós­endum Sós­í­alista­flokks Íslands.

Í þeirra hópi var Ragnar Þór Ing­ólfs­son, sem 20,9 pró­sent allra þeirra sem á annað borð tóku afstöðu í könn­un­inni sögð­ust treysta best til að leiða ASÍ, með mest traust, en 38 pró­sent kjós­enda Sós­í­alista­flokks sögðu að þau treystu Ragn­ari Þór best til þess að leiða ASÍ. 32 pró­sent völdu Drífu, sem sagði af sér sem for­seti ASÍ á meðan að verið var að fram­kvæma könn­un­ina.

Í könn­un­inni var auk Ragn­ars Þórs og Drífu hægt að velja á milli verka­lýðs­leið­tog­anna Vil­hjálms Birg­is­son­ar, Sól­veigar Önnu Jóns­dóttur og Krist­jáns Þórðar Snæ­bjarn­ar­son­ar.

Auglýsing
Einungis 55,3 prósent svarenda könnunarinnar völdu einhvern af þeim fimm verkalýðsleiðtogum sem spurt var um í könnuninni.

Væntir kjós­endur Vinstri grænna báru sam­kvæmt könn­un­inni mest traust til Drífu, en 69 pró­sent þeirra sögð­ust helst treysta Drífu til þess að leiða ASÍ. Á meðal kjós­enda Sam­fylk­ingar sögð­ust 59 pró­sent treysta Drífu best, en 22 pró­sent nefndu Ragnar Þór.

Vil­hjálmur á eftir Drífu hjá kjós­endum D og B

Hjá væntum kjós­endum bæði Fram­sóknar og Sjálf­stæð­is­flokks treystu 47 pró­sent Drífu best til að leiða ASÍ, en hjá báðum flokkum mæld­ist traustið næst­mest í garð Vil­hjálms Birg­is­son­ar.

Mynd: Gallup

29 pró­sent þeirra sem sögð­ust ætla að kjósa Sjálf­stæð­is­flokk sögðu að Vil­hjálmi, sem er for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins og Verka­lýðs­fé­lags Akra­ness, væri best treystandi til að leiða ASÍ og 21 pró­sent þeirra sem sögð­ust ætla að kjósa Fram­sókn voru þeirrar sömu skoð­un­ar. Vil­hjálmur hefur þó til­kynnt að hann komi ekki til með að bjóða sig fram til for­seta ASÍ, og seg­ist sjálfur vilja að Ragnar Þór taki við sem for­seti ASÍ.

Örfáir í hópi væntra kjós­enda þess­ara tveggja flokka nefndu Sól­veigu Önnu Jóns­dóttur for­mann Efl­ing­ar, sem alls 6,1 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu treystu best til að leiða ASÍ.

Ein­ungis rúmur helm­ingur svar­enda tók afstöðu

Könnun Gallup, sem fjallað var um í Frétta­blað­inu í morg­un, var lögð fyrir á net­inu dag­ana 4.-15. ágúst. Alls voru 1.673 manns í úrtak­inu og þar af svör­uðu 842 þeim spurn­inga­lista sem lagður var fyr­ir­.

Ein­ungis 466 þeirra tóku þó afstöðu til spurn­ing­ar­innar sem áhuga­hóp­ur­inn, sem Ólöf Helga Adolfs­dóttir rit­ari Efl­ingar hefur verið í for­svari fyr­ir, lét leggja fyr­ir, eða 55,3 pró­sent svar­enda.

Háskóla­borg­arar og Reyk­vík­ingar treystu helst Drífu

Sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­inn­ar, sem nálg­ast má í heild sinni hér, er tölu­verður munur á trausti til verka­lýðs­leið­tog­anna eftir bæði mennt­un­ar­stigi svar­enda og búsetu þeirra. Þannig voru þeir svar­endur sem tóku afstöðu og höfðu háskóla­próf lík­legri til að treysta Drífu en aðr­ir, en 58 pró­sent þeirra sögð­ust best treysta Drífu til að leiða ASÍ. Hún naut svo mests stuðn­ings hjá 50 pró­sentum þeirra sem lokið hafa fram­halds­skóla­prófi og 38 pró­sent þeirra sem höfðu grunn­skóla­próf treystu Drífu best, sem er öllu lægra hlut­fall.

Ef horft er til búsetu kemur í ljós að svar­endur búsettir í Reykja­vík báru mest traust til Drífu, en 63 pró­sent svar­enda í höf­uð­borg­inni sögð­ust helst treysta Drífu til að leiða ASÍ. Í nágranna­sveit­ar­fé­lögum borg­ar­innar sögð­ust 42 pró­sent helst treysta Drífu, en Ragnar Þór naut mest trausts 27 pró­senta svar­enda í Krag­an­um.

Í öðrum sveit­ar­fé­lögum lands­ins, lands­byggð­un­um, sögð­ust 40 pró­sent svar­enda helst treysta Drífu. Hjá þessum hópi svar­enda sögð­ust 26 pró­sent treysta Vil­hjálmi Birg­is­syni best til þess að leiða ASÍ, en 20 pró­sent sögð­ust helst treysta Ragn­ari Þór.

Sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar var hvorki mark­tækur töl­fræði­legur munur á svörum ef horft var til kyns, ald­urs né fjöl­skyldu­tekna.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent