Ríkið fær yfir 50 milljarða króna fyrir hlutinn í Íslandsbanka

Líkur eru fyrir því að lægri boð en 79 krónur á hlut fyrir bréf í Íslandsbanka verði ekki samþykkt.

íslandsbanki
Auglýsing

Í til­kynn­ingu sem send var til Kaup­hallar Íslands í morgun til­kynn­ing Banka­sýsla rík­is­ins, sem fer með hlut rík­is­sjóðs í Íslands­banka, að umsjón­ar­að­ilar útboðs með hluti í bank­anum hafi ráð­lagt að leið­bein­andi loka­verð fyrir útboðið sem nemur 79 krónur á hvern hlut. „Líkur eru fyrir því að lægri til­boð verði ekki sam­þykkt“.

Þetta eru efri mörk útboðs­bils­ins og ef allt sem mögu­lega er til sölu verður selt, sem er senni­legt í ljósi þess að mikil umfram­eft­ir­spurn er eftir bréfum í bank­an­um, mun rík­is­sjóður fái um  53 millj­arða króna fyrir 35 pró­sent hlut­inn sem seldur verð­ur.

Auglýsing
Áætlað er að útboð­inu ljúki á hádegi á morg­un, þriðju­dag­inn 15. júní 2021 og verða bréf í Íslands­banka í kjöl­farið skráð á hluta­bréfa­mark­að.

Þegar skrán­ing­ar­lýs­ing Íslands­banka var birt í byrjun síð­ustu viku kom fram að hið leið­andi verð­bil í því væri frá 71 til 79 krónur á hlut. Mið­punktur þess reikn­aði að virði bank­ans væri 150 millj­arðar króna, en eigið fé bank­ans er 185 millj­arðar króna. Nú er ljóst að virði bank­ans verður vel umfram það enda eft­ir­spurn eftir bréfum langt umfram fram­boð. Þar þykir ráða mestu að bréfin telj­ast ódýr, sér­stak­lega í sam­an­burði við gengi bréfa í Arion banka, hinum kerf­is­lega mik­il­væga bank­anum sem skráður er á mark­að.

Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, Gildi, Capi­tal World Invsestors og RWC Asset Mana­gement hafa þegar skuld­bundið sig til að kaupa um það bil tíu pró­sent af öllu útgefnu hlutafé Íslands­banka í hluta­fjár­út­boði bank­ans og verða svo­kall­aðir horn­steins­fjár­fest­ar. Búist er við mik­illi þátt­töku almenn­ings í útboð­inu þar sem að hægt er að skrá sig fyrir mjög litlum hlut­um.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í maí að hann vilji selja það sem eftir mun standa af eign­ar­hlut Íslands­banka við fyrsta tæki­færi á næsta kjör­tíma­bili. Ríkið er skuld­bundið sam­kvæmt skil­málum hluta­fjár­út­boðs­ins að selja ekki fleiri hluti í hálft ár eftir fyrstu sölu. Bjarni sagði við Frétta­blaðið í síð­asta mán­uði: „Ef ég fengi ein­hverju um það ráðið þá myndum við klára þennan áfanga og við myndum nota fyrsta tæki­færi á nýju kjör­tíma­bili til að halda áfram að losa okkur við eign­ar­hluti í bank­an­um.“ Það verði verk­efni næsta kjör­tíma­bils. 

Bjarni sagð­ist líka vilja selja 35 til 50 pró­sent hlut í Lands­bank­an­um, sem ríkið á líka. Sá hlutur sem ríkið myndi halda væri til þess fallið að tryggja að á Íslandi yrði áfram höf­uð­stöðvar banka. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent