Rio Tinto Alcan afhendir orku og greiðir 17 milljónir dala

riotinto.jpg
Auglýsing

Rio Tinto Alcan á Íslandi og Lands­virkjun hafa samið um breyt­ingu á orku­af­hend­ingu sem end­ur­speglar betur orku­þörf álvers­ins í Straums­vík, að því er segir í til­kynn­ingu frá Lands­virkj­un. Rio Tinto Alcan greiðir Lands­virkjun 17 millj­ónir Banda­ríkja­doll­ara, vegna kostn­að­ar­ins sem það hafði í för með sér fyrir Lands­virkjun að reisa Búð­ar­háls­virkjun fyrr en þörf krafði.

 

Árið 2010 gerðu Lands­virkjun og Rio Tinto Alcan með sér raf­magns­samn­ing sem nær til árs­ins 2036. Lands­virkjun reisti Búð­ar­háls­virkjun til að efna samn­ing­inn og Rio Tinto Alcan réð­ist í 500 millj­óna doll­ara fjár­fest­ing­ar­verk­efni í því skyni að auka fram­leiðslu álvers­ins og hefja fram­leiðslu á verð­mæt­ari afurð­um.

Auglýsing

Eins og Rio Tinto Alcan hefur áður upp­lýst hefur fram­leiðslu­aukn­ingin sem stefnt var að ekki náðst að fullu. „Ollu því ófyr­ir­séðar hindr­anir hvað varðar bæði örygg­is­mál og tækni­lega þætti verk­efn­is­ins. Álverið hefur af þeim orsökum ekki full­nýtt þá orku sem samn­ing­ur­inn frá 2010 felur í sér,“ segir í til­kynn­ingu frá Lands­virkj­un.

Sam­komu­lag fyr­ir­tækj­anna felur meðal ann­ars í sér að Rio Tinto Alcan skilar Lands­virkjun 35 MW af ónot­uðu afli, sem hægt er að nota til að auka fram­boð raf­orku á íslenskum raf­orku­mark­aði.

Breyt­ing­arnar á samn­ingnum eru báðum aðilum til hags­bóta, segir í til­kynn­ing­unni. Lands­virkjun öðl­ast aukna mögu­leika til raf­orku­sölu og á sama tíma er mögu­leikum Rio Tinto Alcan til áfram­hald­andi vaxtar við­hald­ið.

Hörður Arn­ar­son, for­stjóri Lands­virkj­un­ar, seg­ist fagna sam­komu­lag­inu. „Með því er greitt úr ófyr­ir­séðum vanda­málum sem upp komu við fjár­fest­ing­ar­verk­efni Rio Tinto Alc­an. Sam­komu­lagið grund­vall­ast á langvar­andi við­skipta­sam­bandi fyr­ir­tækj­anna sem og virð­ingu fyrir gagn­kvæmum við­skipta­hags­mun­um."

Rann­veig Rist, for­stjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi, segir sam­komu­lagið stað­festa að við­skipta­sam­band áliðn­aðar og orku­fram­leiðslu ein­kenn­ist af virð­ingu. „Við erum stolt af því að hafa staðið að langstærsta fjár­fest­ing­ar­verk­efni á Íslandi á und­an­förnum árum, í því skyni að fram­leiða verð­mæt­ari afurð­ir, auka rekstr­ar­ör­yggi, efla meng­un­ar­varnir og auka fram­leiðsl­una. Þetta hefur skapað yfir 1.000 árs­verk á tímum þegar íslenskt efna­hags­líf þurfti hvað mest á þeim að halda. Sam­komu­lagið við Lands­virkjun er enn ein stað­fest­ing þess að við­skipta­sam­band áliðn­aðar og orku­fram­leiðslu á Íslandi ein­kenn­ist af gagn­kvæmri virð­ingu og gagn­kvæmum ávinn­ing­i,“ er haft eftir Rann­veigu í til­kynn­ingu.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiFréttir
None