Alls bárust 22 umsóknir um embætti skrifstofustjóra á skrifstofu stefnumála í forsætisráðuneytinu. Á meðal umsækjenda um stöðuna eru Karl Garðarson fyrrverandi fjölmiðlamaður og þingmaður Framsóknarflokksins, Gylfi Arnbjörnsson fyrrverandi forseti Alþýðusambands Íslands og Ari Matthíasson fyrrverandi þjóðleikhússtjóri.
Umsóknarfrestur rann út 20. ágúst. Einn umsækjandi dró umsókn sína til baka, samkvæmt því sem segir í tilkynningu á vef stjórnarráðsins.
Þriggja manna hæfnisnefnd skipuð af forsætisráðherra mun nú meta hæfni umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra mun síðan skipa í embættið til fimm ára.
Skrifstofa stefnumála í forsætisráðuneytinu vinnur í umboði forsætisráðherra að stefnumótun og framgangi stefnumála ríkisstjórnarinnar með því að vinna að samhæfingu mála innan stjórnarráðsins og utan, auka yfirsýn og forystu forsætisráðuneytisins og tryggja vandaðan undirbúning mála fyrir ráðherra og ríkisstjórn, samkvæmt því sem segir í tilkynningu forsætisráðuneytisins.
Nöfn umsækjenda:
- Ari Matthíasson, deildarstjóri
- Arnheiður Elísa Ingjaldsdóttir, staðgengill skrifstofustjóra
- Atli Viðar Thorstensen, sviðsstjóri
- Einar Hlöðver Sigurðsson, vöruþróunarstjóri
- Gerður Guðrún Árnadóttir, sérfræðingur í ráðgjöf verðbréfa- og lífeyrisþjónustu
- Guðbrandur Sigurðsson, framkvæmdastjóri
- Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur
- Hermann Sæmundsson, skrifstofustjóri
- Ingunn Sigríður Þorsteinsdóttir, rekstrarhagfræðingur
- Jóhann Kristjánsson, ráðgjafi
- Jóna Guðný Káradóttir, viðskiptafræðingur
- Karl Garðarsson, framkvæmdastjóri
- Lilja Dögg Jónsdóttir Donovan, sérfræðingur
- Lína Björg Tryggvadóttir, verkefnastjóri
- Pétur Berg Matthíasson, settur skrifstofustjóri
- Reynir Jónsson, sérfræðingur og verkefnastjóri stefnumótunar
- Rögnvaldur Guðmundsson, verkefnastjóri
- Steinunn Halldórsdóttir, stjórnsýslufræðingur og verkefnastjóri
- Þorsteinn Þorgeirsson, efnahagsráðgjafi
- Þórlindur Kjartansson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi
- Þröstur Freyr Gylfason, sérfræðingur